Afturelding - 01.01.1942, Blaðsíða 8

Afturelding - 01.01.1942, Blaðsíða 8
AFTURELDING hann og grefur. Nóttin líður, hann er þegar liú- inn að grafa svo stóra holu, að hann kemst niður í hana og fer nú að grafa sig út hinumegin undir vegginn. Hann grefur, heldur áfram að grafa með blóðugum fingrum, þar til hann er kominn út. Já, sannarlega er hann kominn út. En hvert á hann nú að fara? Þeir munu vissulega leita hans alls- staðar og- flytja hann til höfðingjans, ef þeir finna hann. Honum datteittíhug, »Fang«-maðurinn hafði sagt að allir menn væru bræður, sem ættu að elsk- ast og hjálpa hver öðrum, og Trott hafði séð hann gera það sjálfan. Hann laumaðist varlega inn í skóginn. Nú eru hanarnir að byrja að gala í þorp- inu, en Trott er á svipstundu kominn langt í burtu. Hann hleypur eins og fætur toga og sneiðir fram h;já öllum þeim stöðum, þar sem spor hans gætu sézt. Nú kemur það sér vel fyrir Trott að þekkja vegina, enda hleypur hann svo hart, að svipan úi1 vatnahests-skinninu hafði aldrei komið honum á slíka ferð. Hann hleypur allan daginn til kvelds, en þá leitar hann sér að holu tré, skríður þar inn, og dauðþreyttur og svangur sofnar hann þar. Hann dreymir um »Fang«-manninn, sem elskar bræður sína. Og um Nzam, föðurinn, sem elskar sín bÖrn. f afturelding næsta dag byrjar hann aftur að hlaupa. Hann finnur nokkra lélega banana í eyði- gajrði, og með þeim seður hann hungur sitt. Hann sefur aðra - nótt til í holu tré. En daginn þar á eftir, kemur hann að Fangmanna þorpi. Þegar liann þá man eftir öllu, sem hann hefir heyrt um Fang'-mannæturnar, verður hann hræddur og fel- ur sig í skógarjaðrinum allan daginn, til þess að athuga, hvernig þorpsbúar haga sér. Hann kem- ur auga á »Fang«-manninn, sem hafði talað um Nzam, og sér líka konu hans og börn, og hvar þau búa. Þau virðast öll vera svo hamingjusöm. Mað- urinn talar vinalega við konu sína og hún hugs- ar kyrrlát um sín verk. Það er komið kveld . .. Hann heyrir klukknahljóm og sér fólkið þyrpast saman nálægt húsi »Fang«-mannsins og hann heyrir líka sÖng, sem hljómar fegurra en nokkuð það, er hann hefir áður heyrt. Hann skilur ekkt orðin, en þau eru svo mild. Nú er »Fang«-»maðurinn farinn að tala. Hann hlýtur að tala um eitthvað gott, því Trott heyrir hann svo oft nefna orðið »anyéghe« og- hann veit að það þýðir kærleikur. Að endingu sltanda allir upp, og Fang-maðurinn talar við ein- hvern, sem Trott getur hvergi séð, og hann kall- ar hann Tare, Föður! Hvern skyldi hann ávarpa svona? Að endingu var svo sunginn söngur og eft- ir það fór fólkið heim. Trott felur sig nú ekki lengur, heldur skríður hann fram, nakinn og svang- ur, skítugur og skjálfandi. Og1 aJlir stara á hann með undrun. Trott stamar fram einu »Fang«-orði, sem hann kann. Það er »ngongol« og þýðir misk- unsemi. Það var eins og þetta eina orð hefði í sér falinn segulkraft, og þögn áhorfendanna var rofin. Fang-maðurinn kemur til hans, tekur hann viö hönd sér og segir: líom með mér heim, þú ert svangur. Kom og fá þér næringu. Allir umkringja flóttamanninn. Hann áttar sig ekki fyr.r en hann situr inni í húsi, klæddur í snotra mittis-skýlu og volgir bananar og kjöt liggja á borði fyrir fram- an hann. Hann segir sögu sína meðan hann etur. AJlir þorpsbúar eru komnir inn í húsið hjá Fang- manninum til þess að hlusta á sögu Trotts. Trott sér að fráögnin hefir djúp áhrif á þet.ta vilta íóJk, hann endar því með þessu: Fyrir nokkru síðan heyrði ég þig segja við húsbónda minn, að allir menn væru bræður, seml ættu sama föður, að hann elski okkur og við eigum því að elska hver annan. Og þessvegna kom ég hingað«. »Það var fallega gert af þér að ltoma«, sagði Fang-maðurinn og bætti svo við :»Já, Faðirinn elskar okkur og Hann elskar þig líka, og Hann getur sýnt okkur, hvernig við eigum að hjálpa þér«. Fangmaðurinn heldur áfram að tala og nú finn- ur Trott í fyrsta sinni, að honum er sýnd um- hyggjusemi. Það er eins og sterk velþóknunartil- finning komi yfir hann, og djúpur friður streymir inn í sál hans. Það ðr orðið áliðið, þegar fólkið fer, en Trott finnur, að hann er umkringdur af bræðr- úm og systrum, og meðan hann er að sofna, hugs- ar hann um Föður Nzam, sem elskar öLl sín börn. Daginn eftir kallar höfðinginn alla þorpsbúa saman og þar á meðal Fang-imanninn. Karlmenn- irnir fara nú inn í skógarrjóður þar, sem enginn gat heyrt til þeirra og ræða þar mál Troitts. Hann veit sjálfur, að þeir eru að tala um hann og leysa vandamál hans. Samræðurnar urðu stuttar og eftir það talar höfðinginn við Trott í allra áheyrn: Við Fang-menn hpfum enga þræla og orð Guðs er komið til þorps okkar, o.g það bannar okkur að deyða, þessvegna getum við ekki sent þig aftur til höfðingja þíns. En kom heim með mér og ver sonur minn. Synir höfðingjans taka nú undir hönd Trotts og segja: »Monezam bróðir«. Getur þetta verið rétt? Ungi drengurinn sem var seldur af föður sínum. Vesal- ings þrællinn, seldur og aftur seldur. Hrifinn frá bálinu og orðinn frjáls, sonur stórhöfðingja. Það er Nzam, sem hefir komið þessu til leiðar, sagði

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.