Afturelding - 01.01.1953, Qupperneq 12

Afturelding - 01.01.1953, Qupperneq 12
AFTURELDING Þegar hersveitir Títusar herjuðu á Jerúsalem árið 70, og musterið var bæði brennt og brotið til grunna, þá stóð einn af hinum síðustu musterisprestum á tæpustu brún hins brennandi þaks. I höndum sér hélt hann hinum gullna lykli Jerúsalemborgar. Á sömu stundu, sem þakið féll ofan í eldhafið, kastaði hann lyklinum upp móti himninum og hrópaði til Guðs: „Þú eilífi Guð, vernda nú sjálfur borgina þína.“ Og um leið sást hönd rétt út frá himninum, sem greip lykilinn og tók hann inn í blá- djúp hinna eilífu himna. Þetta segir helgisögn frá þeim tíma. Hér á eftir fer svo önnur saga, sem menn vita með vissu að er sönn. Einn hinna merkustu manna síðari heimsstyrjaldarinn- ar, var hinn brezki yfirhershöfðingi, Orde Wingate, sem framkvæmdi fjölmarga ótrúlega hluti hernaðarlegs eðl- is. — 1 síðasta blaði Aftureldingar var skrifað um þenna fræga hershöfðingja. Sjá greinina í jólablaðinu: „Leynd- ardómsfullt loftskeyti.“ —- Wingate féll rétt áður en fullnaðar sigur vannst. Hann hóf starfsskeið sitt á tímum Arabísku ólgunn- ar. Kringum 1930 unnu arabískir uppreistarmenn skemmdarverk á hinum lífsþýðingarmiklu olíuleiðslum, sem liggja gegnum eyðimörkina frá írak til Haifa. Win- gate tókst að stöðva þessa hætlulegu starfsemi. Hann æfði unga Gyðinga til njósnarstarfsemi á mótorhjólum í eyði- mörkinni, sem síðar sigruðu með heiðri í eyðimerkur- styrjöldinni. Þessir hermenn urðu undirstöðustólparnir að hjálparhersveitunum, Polmach, í stríðinu 1948. Wingate, sem var maður sannkristinn, hafði mjög næman skilning á málefnum Gyðinga. Nafn hans lifir enn þar í landi, sem eins af sönnustu vinum ísraels. Á öndverðu sumri, 1948, var gerð árás á samvrkju- bóndann Kfar Naphateli í Galíleu og hann særður af hersveitum frá Libanon. Hinir fáu Gyðingar þar í ný- lendunni, komu á fót mjög fámennri varnarsveit. Fór þá sem oftar, í þessu merkilega stríði, að hinn gyðinglegi stálvilji til að lifa, og hugkvæmni þeirra og hugrekki leiddi til sigurs, svo að árásin misheppnaðist. En, þegar bardaginn stóð sem hæðst, skeði eftirfarandi: Verjendur Kfar Naphatelis sáu litla gyðingaflugvél fljúga í mörg- um hringjum yfir nýlenduna. I flugvélinni var aðeins einn farþegi, og hann var kona, sem veifaði niður til þeirra. Síðan fleygði hún litlum pakka út úr vélinni. Hann féll niður og vélin hvarf. 12 Lni HyRilL Hvað skyldi vera í pakkanum? Vopn, sárabindi, lyf eða eitthvað þessháttar? Nei, ekkert af þessu. En gömul og snjáð Biblía, með nafni Orde Wingates skrifuðu á titilblaðið, kom innan úr bögglinum. Þegar stríðið hófst, flýtti ekkja Orde Wingate sér til ísrael. Hún tók á leigu eina hinna handhæfu flugvéla í Tel Aviw, með það fyrir augum að uppörva varnarlið Kfar Na])hatelis. Og hún tók gömlu og slitnu Biblíuna mannsins síns, til að varpa henni niður til hersveitanna. Hún ályktaði, að þegar her- mennirnir sæu nafn hans á Biblíunni og bókina sjálfa, er þeir hefðu séð hann svo oft lesa, þá mundi það verða kröftugasta ráðið til að blása nýjum hug í hið aðþrengda varnarlið. Það fór líka svo. Þegar þeir sáu Biblíuna, var eins og þeir heyrðu hinn fallna hershöfðingja sjálfan tala til þeirra. Og sigur unnu þeir á móti ofurefli liðs. Með þessu einkennilega fyrirbæri getur verið að Guð sé að gefa Gyðingum bendingu um að með Bibliunni sé |)eim gefinn á ný hinn gullni lykill frá himninum. Nokkur vitnisburðarorð. Algóði himneski Faðir, ég þakka þér fyrir elsku þína og kærleika, náð og blessun, sem þú hefur veitt mér, að þú gafst þinn eingetinn Son til þess að líða háðung, kvalir og dauða fyrir mínar syndir. „Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf Son sinn eingetinn lil þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3,16. Þess vegna er Jesús, minn Frelsari og vinur. Hann hefur fyrirgefið mér syndir mínar og greitt fyrir þær með blóði sínu og lífi, og vísað mér veginn, sem liggur um Golgata til himinsins dýrðlegu bústaða, þar sem öll Guðs börn eiga heima um alla eilífð. Vil þú ekki einnig vera með, lesandi góður, í hinni dýrðlegu guðsbarna hjörð? Efalaust viljið þið öll vera með. Jesús hefur sagt: „Ég er vegurinn og sannleikurinn og lífið, enginn kem- ur til Föðurins nema fyrir mig.“ Á þessum tímum ófrið- ar og haturs, guðleysis og vantrúar, er engin stjórnmála- stefna, sem getur bjargað hinu syndum hrjáða mannkyni frá glötun, heldur sönn og lifandi Guðstrú. Fólkið þarf að snúa sér til Drottins í iðrun og bæn og læra að þekkja hinn eina sanna Guð og þann sem hann sendi Jesúm Krist, sinn eingetinn Son. Honum sé lof og dýrð um aldir alda, amen. ÞnrSur Gu'ðmundsson, frá fsafirSi.

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.