Afturelding - 01.04.1953, Side 7
AFTURELDING
við þessi mál. Það sagði Iíka A. J. að hinir kristnu þyrftu
að gera, því að þá mundi vernd Guðs opinberast meira
en ella, þegar þetta kæmi fram. Hann sagði einnig að
fyrir bænir Guðs barna gæti þetta dregizt lengur, en
umflúið yrði það ekki.
En hvað verður úr pólvelltunni? munu sumir segja,
ef til vill. Hér er því til að svara, að undirritaður, sem
skrifaði um þetta í Aftureldingu í fyrra, sagði þá strax
um útreikninga dr. Hallenborgs, viðvíkjandi því, að póll-
inn mundi velta: „Þótt ég vilji ekkert rýra útreikninga
dr. Hallenborgs né það, sem hann segir, þá get ég ekki
neitað því, að ég bef meiri trú á því sem Anton Jóhan-
sen segir.“ Um rök dr. Ilallenborgs fyrir því, að líklegt
væri að Norðurpóllinn mundi velta, hafði blað „Kriste-
lig Folkeparti“ í Noregi skrifað á undan Aftureldingu.
En fyrir því blaði standa meðal annarra, sem ábyrgir
menn, 9 þekktir þingmenn í norska þinginu. Upp úr
þessu blaði (Dagsavisa“) tók Afturelding orðrétt það
sem hún hafði eftir dr. Hallenborg og gat jafnframt um
þær heimildir. Það má gleðja alla, að ekki hefur enn
orðið af því, sem Hallenborg bjóst við, og vonum við
að það komi aldrei fram, þó að enginn geti ábyrgzt það.
Oðru máli er að gegna um spádóma A. J. Þeir eru ekki
bornir fram af vísdómi eða útreikningum manns, heldur
fyrir opinberun Guðs. Af því leiðir, að kristnir menn
hafa ríka ástæðu til að leggja sér slíkar viðvaranir á
hjarta.
Seint á árinu sem leið sá ég í kristilegu blaði, sem
gefið er út í Svíþjóð, bréf birt, sem þekktur kristinn
inaður og ritsLjóri, Guslav L. Lindkvist, hefur skrifað
og sent Norðurlandakonungunum þremur og ríkisstjórn-
um sömu landa. 1 bréfinu varar liann ríkisstjórnir og
konunga Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur við því, sem
hann segir að trúlegt sé að komi yfir allar þessar þjóðir
samkvæmt spádómum Antons Jóbansens. Uggur bréfrit-
arans er einkum í sambandi við árásarstríð á þessi lönd,
sem Anton sagði að koma mundi á þeim tíma, sem nú
er að fara í hönd. Lindkvist nefnir ekki flóðbvlgjuna
sérstaklega í bréfi sínu. Það kann að vera vegna þess
að árásarstríðið er rniklu alvarlegra í augum hans. En
auðséð er, að bréfritarinn leggur mikinn trúnað á spá-
dóma Jóhansens. — Tekið skal fram, að maður þessi er
ekki Hvítasunnumaður.
Hvort sem við föllumst á það eða ekki, að flóðin í
Englandi og IJollandi hafi verið fyrirboði annars meira,
þá er bitt víst að Guð hefur talað í gegnum þau.
Það er ekki tilgangur Aftureldingar að vekja bræðslu
eða hugaræsingu hjá fólki með því að befja máls á þessu
að nýju. Því fer víðs fjarri. En vemia þrálátra spurninga
út í þetta liefur okkur þótt rétt að víkja að þessu nú.
Við teljum það líka skyldu okkar, að vara fólk við
þeim hættum, sem framundan eru. Komi ekki alvaran
yfir lönd og lýði lík því, sem hér er látið að liggja, þá
mega menn vera vissir um það, að bún kemur í einhverri
annarri mynd og henni alvarlegri. Þessvegna genguí
viðvörunin enn einu sinni út, sem Guð sendi forðum á
viðsjárverðum tíma, lil allra sem heyra vildu þá: „Fyrir
því vil ég svo með þig fara, ísrael: — af því að ég ætla
að fara svo með þig, þá ver viðbúinn að mæta Guði
þínum, ísrael!“
Hvernig getum við verið viðbúin að mæta Guði okkar?
Á þann eina veg, að við snúum okkur frá syndum okkar
og leitum Krists, sem persónulegs Frelsara okkar. Þar
og aðeins þar verður okkur, bæði sem einstaklingum og
þjóð, borgið.
Ásmundur Eiríksson.
Einstæðasta kraftaverk
veraldarsögunnar.
Forsætisráðherra ísrael, Davið Ben-Gurion, talaði nýlega um
heimkomu Gyðinga til Israel. Sagði hann þa meðal annars: „Það
kraftaverk er skeður nú fyrir augum okkar á enga hliðstæðu í
sögunni. Hér er um að ræða miklu meira heldur en brottför Gyð-
inga frá Egyptalandi forðum. Þá voru það röskar 600.000 manns
sem lögðu af stað og 40 ár voru þeir að ná fyrirheitna landinu.
Á siðustu 3 árum hafa meira en 600,000 Gyðingar komið heim
til ísrael. — Það er aðeins byrjunin. Ezekicl 37 hejur rœtzt og
fólki'S í Israel heyrir slcóhljóS Messíasar.“
Fyrir 80 árum skriíaði Mark Twain um áhrif sin af heimsókn
i Landið helga. „Palestína situr í sekk og ösku, eyðileg og ófrjó-
söm. Vonlaust og raunalegt land. Og hvernig a'tti það annars að
vera? Getur reiði Guðdómsins fegrað nokkurt land? Ekki er
hægt að reikna Palestínu með löndum nútímans.“
30 árum síðar heyrðist baráttu rödd Austurríska Gyðingsins Dr.
Herzl í þingum Evrópu.“ Það er land, án þjóðar. Það er þjóð án
lands. Gefið landið án þjóðar, þjóðinni sem er án lands!“
í dag er ísrael í fullkominni endurbyggingu, sem ekki á sinn
lika í sögunni. Rætast út í æsar spádómar Biblíunnar. ísrael er
einnig sjálft farið að sjá sig í Ijósi Guðs orðsins, þannig að tala
hinna kristnu eykst. — Nýjar verksmiðjur eru byggðar með mikl-
um hraða og krafti. Þar á meðal vefnaðarvöruverksmiðja fyrir
norðan Jarkon ána. Glerverksmiðja nálægt Beerseba og sykur-
verksmiðja í Gan Javne.
Skipastóll ísraels sem fyrir fjórum árum taldi aðeins 4 skip.
Telur í dag 124 skip, sem að samanlagðri lestartölu nálgast
120.000 tonn.
Innflutningur fólksins sem er skipulagður að fjölda til, fer venju-
lega langt fram úr áætlun. Þannig var það með fyrstu mánuði
ársins 1952.
Landsvæði í ísrael, sem varla dropi úr lofti hefur fallið á í
áratugi og aldir, fékk svo ríkulega úrkomu í vetur að jafnvel
truflanir orsökuðust af. Rættust hér spádómsorðin er Drottinn
lofaði að hella vatni yfir hið þyrsta og árstraumum yfir þurlendið.
23