Afturelding - 01.01.1962, Side 5
AFTURELDING
Þú verður að vilja koma aftur. Ég
hef ekki þekkt neinn þann fráfallinn
mann, sem aðeins gerði það fyrir
annarra manna orð að snúa sér aftur
til Guðs, hafi varðveizt. Heldur veit
ég hitt, að þeir sem farið hafa að
þjóna Guði að nýju með gleði og
krafti, eru einmitt þeir, sem vildu
koma aftur til Drottins. Frelsið er
nefnilega viljaákvörðun, fyrst og
fremst. Glataði sonurinn sagði á
þessa leiðl: Ég vil taka mig upp og
snúa heim. Ég er örmagna og þreytt-
ur í þessu fjarlæga landi. Daglauna-
mönnum föður míns líður betur á
allan hátt, en ég ferst hér úr hungri,
kulda og klæðleysi. Ég yfirgef þetta
syndalíf. Ég vil fara heim! En þessi
hugsun kvaldi hann.
Heldur þú raunverulega að faðir-
inn vilji taka mig aftur að sér, inn í
heimili sitt? Ég hef lifað hræðilegu
synda og lastalífi og syndgað gegn
honum.
Eftir iðrun viðurkenndi glataði
sonurin að hann yrði að biðja föður
sinn fyrirgefningar.
Þetta var rétt hugsun, en þú verður
að taka annað skref . Þú verður að
framkvæma þau góðu áform.
Einhver hefur sagt viturlega: —
„Vegurin til helvítis er varðaður
góðum áformum.” Margir sem nú
eru fráfallnir í glötunarstaðnum
ætluðu sér ekki þá leið. Þeir hugsuðu
Hvernig getur þú komið
aftur til Guðs?
Eftir ORAL ROBERTS
sér að koma aftur til Guðs, en þeii
biðu, þar til það var of seint.
Glataði sonurinn ákvað að snúa
aftur til föður síns og segja honum
frá, hversu hann iðraði alls þess, er
hann hafði gert. Hann gerði meir en
segja þetta, hann lióf ferðina heim á
leið. Vegurinn var ósléttur og bratt-
ur. Næturnar voru dimmar og kald-
ar, hann brauzt áfram—áfnam—i
áfram. Hann var á leið heim.
Þriðja skrefið er nauðsynlegt:
Játning fyrir Guði og mönnum.
Það gerði glataði sonurinn. Þegai
hann nálgaðast gamlia heimilið og
mætti föður sínum, sagði hann:
„Faðir, ég hef syndgað móti himn-
inum og fyrir þér. Ég er ekki fram-
ar verður þess að heita sonur þinn.”
Það sem hann hafði ákveðið, gerði
hann.
Hvað gerir svo Guð ?
Hann býður þig innilega velkominn
heim. Hann vill seðja þína hungr-
uðu sál með elsku og kærleika og
meðaumkun. Hann vill fjarlægja og
taka burt skortinn og neyðina og
fullnægja þínum dýpstu þrám. Þetta
var það sem faðirinn gerði fyrir
glataða soninn. Þetta er það sem
þinn himneski faðir vill gera fyrir
þig-
Hann vill — ef þú vilt.
Þú spyrð: „Ó mun hann gera þetta
fyrir mig eftir allt sem ég hef rang-
legia gert?” Mundir þú fyrirgefa
litla barninu þínu, sem hefur hlaup-
izt á brott? Mundir þú taka það aft-
ur í sátt við þig?
Auðvitað mundir þú gera það!
Ef þú mundir taka þitt eigið barn
aftur að þér ,hversu miklu fremur
mun þá ekki okkar dásamlegi Drott-
inn Jesús Caka þig að sér aftur og í
fulla sátt. „ Því að sá, sem gengur
fram fyrir Guð, verður að trúa því,
að hann sé tií, og að hann lætur
þeim umbunað, er hans leita. (Hebr.
11, 6.)
Hann vill, ef þú vilt. En fúsleiki
hans og áhugi að taka aftur við þér
hjálpar þér ekki nema þú trúir því.
Yfirlit.
1. Þú verður að vilja koma aftur
til Guðs.
2. Þú verður að framkvæma þín
góðu áform.
3. Þú skalt segja Guði frá því,
sem þú hefur sagt við sjálfan
þig-
4. Trúðu að Guð vilji bjóða þig
hjartanlega velkominn.
5. Mundu, að Guð vill fyrirgefa
þér og náða þig.
Bœn fyrir fráfallna.
I allri auðmýkt og trú þá bið þessar-
ar bænar, ]>ar til þú hefur þá full-
vissu að Jesús hefur tekið við þér
aftur. —
„Kæri Guð mjskúnniaðu mér:
vegna þess að ég hef syndgað á móti
'þér.
Fyrirgefðu mér, ó Drottinn minn,
og taktu aftur við mér. Ég kem í
auðmýkt til þín nú, Drottinn.
Ég vil þjóna þér nú og ætíð fram-
vegis. Ó, kæri himneski faðir endur-
nýjaðu gleði og frið sálar minnar.
Ég er þinn og þú ert minn í Jesú
nafni, amen“. Þýtt G. L.
5