Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1936, Page 28
Útdráttur
úr lögum nr. 25, 27. júnf 1921, um einkaleyfi handa háskóla íslands
til útgáfu almanaks.
1. sr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess aö gefa út og selja eða af-
henda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl
en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða meö öðrum hætti almanök eða dagatöl
eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eöa kafla úr þeim
til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa með sektum frá 100—2000 kr., ef
það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri refsing við að
öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa veriö flutt til landsins,
gefin hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr., og skal síðan gera
þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur veröur eftir 5. gr. Miða skal
bætur, ef því verður við komið, við samanlagt söluverð ólöglega seldra eða
afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölulaunum. Ella skal ákveða bætur
eftir atvikum.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefir með samningi keypt einkaleyfi þetta í ár
(1937), og nær það til allra almanaka í bókarformi. Verð hvers almanaks er
samkvæmt samningnum sett á 35 aura. Þeir, sem kaupa 50 eintök eöa fleiri í
senn, fá í afslátt 20 af hundraði.
Árið 1938 ber páskana upp á 17. apríl.
(24)