Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1986, Page 10
Löngum hefur lækurinn laðað að sér böm. I bakgrunni er hjúkrunarheimilið Sólvangur
dvalarstaður margra elstu borgara bæjarins.
Prófkjörseðill Alþýðuflokksins vegna bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði 1986 * Raða skal frambjóðendum í 5 efstu sæti framboðslistans þannig að kjósandi merkirtöluna 1,2,3, 4 eða 5 framan við nafn þess frambjóðanda, sem hann vill í viðkomandi sæti. * Kjósa verður í 5 sæti.
T ryggvi Harðarson
Valgerður Guðmundsdóttir
Þórunn Jóhannsdóttir
Erlingur Kristensson
Guðmundur Árni Stefánsson
Ingvar Viktorsson
Jóna Ósk Guðjónsdóttir
María Ásgeirsdóttir
Sigrún Jonny Sigurðardóttir
A Iþýöublað
Hafnarfjarðar jafnaóarstefnunnar
Utgefandi: Álþýðuflokkurinn í Hafnarfirði
Ritstjórn: Árni Hjörleifsson, s. 52453 Sigþór Jóhannesson,
s. 5224 l,og Þorvaldur Jón Viktorsson, s. 53056.
Ljósmyndir: Jóhann Reynisson
Setning og prentun: Steinmark s/f
Vertu með í
sókn til sigurs
Urn mestu helgi hefst af fullum krafti hinn beini undirbúningur
Alþfðuflokksmanna í Hafnarfirði fyrir bæjarstjómarkosningamar
næsta vor. Pá munu jafnaðarmenn efna til opins prófkjörs, þar sem
Jlokksfólk og almennir sluðningsmenn Alþýðuflokksins hér í Firðinum
velja fólk til forystu fyrir jafnaðarmenn í bæjarmálunum.
Alþýðuflokkurinn er eina stjórnmálaflið í bænum sem viðhefur oþið
prófkjör, þar sem sluðningsmönnum gefst kostur áþví að ráðaferðinni,
taka um það ákvörðun hverjir munu leiða baráttu Jlokksins í komandi
kosningum. Alþýðublað Haftiarfjarðar hvetur eindregið allt stuðnings-
Jólk Jlokksins til þátttöku í prófkjörinu.
Pað er eftirtektarverl, að á sama tíma og þessi lýðræðislega leið er
farin varðandi val karla og kvenna í efstu sæti framboðslista Alþýðu-
Jlokksins, þá hyggjast aðrir flokkar fara aðrar leiðir varðandi val á
sína framboðslista. Hjá Sjálfstæðisflokki, Óháðum borgumm, Al-
þýðubandalagi og Framsóknarflokki em það órfáir einstaklingar úr
hinum þröngu flokksklíkum sem hafa um það alræðisvald, Iwemig
skiþan framboðslisla skuli vera. Pessir Jlokkar telja það augsýnilega
ekki, að það eigi að koma almennum stuðningsmönnum flokkanna neitt
við, hverjir korna til með að skipa framboðslista þessara Jlokka.
Hjá meirihlutaflokkunum í bæjarsljóm, Sjálfstæðisflokki og Óháðum
borgurum eru ríkar ástæðurfyrir þessum einræðistilhneigingum Jlokks-
broddanna. Staðreyndin er sú, að innan þessara flokka logar allt í
illdeilum og djúpstæður ágreiningur ríkjandi um menn og málefni. Og
þeir sem nú hafa tögl og haldir íþessumJlokkum hyggjast keyrayfir alla
andstöðu og koma óþægum fulltrúum út á kaldan klaka.
En það þarf í sjálfu sér ekki að koma neinum á óvart, þótt Sjálfstæð-
ismenn og Oháðir borgarar skuli ráða sínum Jlokksmálum á þennan
hátt, að framboðslistar skulu ákveðnir aj'þremur eða fjórum mönnum.
Petta er nefnilega mjög í stíl þeirra vinnubragða, sem einkennt hefur
meirihlutastjórn þessara Jlokka í bæjarstjóm Hafnarfjarðar.
Pað er engin tilviljun aðjafnaðarmenn í Hafnarfirði eru bjartsýnir á
þær kosningar, sem framundan em, því á degi hverjum fjölgar í stómm
og öflugum flokkiþeirra. Fólk sem áður hefur kosið aðra flokka sérþað
í stórauknum mæli, að nauðsyn er á því að ejla jafnaðarmenn til ahrífa
við stjórn bæjarmála.
Jafnaðarmenn em í mikilli sókn um allt land, hvort heldur er á sviði
landsmála eða bæjarmála. Hér í Hajnarfirði er ekki síst þörf á
breyttum áherslum, nýjum straumumferskum hugmyndum og lýðræðis-
legri stjórnarháttum. Pað gerist aðeins með sigri Alþýðufokksins í
komandi bæjarstjómarkosningum.
Alþýðublað Hafnarfjarðar skorar á bæjarbúa, sem vilja vegfamf-
ara og réltsýni sem mestan við stjórn bæjarmála að fylkja sér um
A Iþýðufokkinn.
Lesandi góður: Vertu strax virkur í stórsókn AlþyðuJIokksins og
taktu þátt i þrófkjör Alþýðufokkins um næslu helgi.
Með samhentu átaki getur ekkert komið í veg fyrir góðan sigur
Alþýðu/Iokksins bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Utan kjörstaðaatkvæða-
greiðsla
Utan kjörstaðaatkvæðagreiðsla fvrir prólkjörið fer
fram dagana 28., 29., 30. og 31. janúar kl. 18-19 í
Alþýðuhúsinu, Strandgötu 32, 3. hæð.
Kjósendum er bent á að merkja á þetta sýnishorn hvernig þeir ætla að greiða atkvæði, og
hafa það með sér á kjörstað. Kjörstjóm
Mótum stefnuna sameiginlega,
gerist félagar í Alþýðuflokknum