Good-Templar - 01.01.1898, Qupperneq 8
4
um á ári og vitum vér því jafnan hvernig stúkunum líð-
ur, hvort þeim fer fram eða aptur, hvar sem þær eru A
iandinu. Stendur Q-.-T.reglan í þessu sem öðru framar en
bindindisfélögin.
Þrátt fyrir þessa skýrsluvöntun vitum vér þó með
vissu, að mjög mikið hefir verið starfað fyrir bindindis-
málið á síðastliðnu ári, enda hefir það og tekið mjög mikl-
um framförum.
Þessar 8 Good-Templarstúkur hafa verið stofnaðar á
síðastliðnu ári:
1. Stúkan »Hlín« nr. 33 í Reykjavík.
2. ----»Hekla« nr. 18 á Vopnafirði (endurstofnuð).
3. ----»Björk« nr. 34 i Langadal í Húnav.s.
4. ----»Gleym mér ei« nr. 35 á Sauðárkrók.
5. ----»Hlíðin« nr. 36 1 Fljótshlíð.
6. ----» Vinabandið« nr. 37 á Blönduósi,
7. ----»Trúin« nr. 38 í Njarðvíkum ytri.
8. ----»Perlan« nr. 39 í Hvolhr. í Rangárv.s.
Fullorðnir meðlimir Good Templarreglunnar hér á
landi voru 1. febrúar 1897 nál. 1400; nú munu þeir vera
nál. 1700 eða haf'a fjölgað hér um bil um 300 á síðast-
liðnu ári og mega það þykja miklar framfarir.
Um framfarir bindindisfélaganna veit enginn með
neinni vissu, eins og þegar hefir verið tekið fram, þvi
skýrslur vanta frá mörgum þeirra, bæði ungum og göml-
um. Þó er enginn efi á því, að bindindisfélögin hafa,
eins og Reglan, tekið miklum framförum, sumpart með
þvi að hin eldri félög liafa aukið meðlimaÞMu sína, sum-
part með því, að ný fólög hafa verið stofnuð.
Vér vitum um stofnun þessara 11 bindindisfélaga á
siðastliðnu ári.
l.Bind.fél. »Þör(in« í Hólahr. i Skagafjarðars.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
»FramsáJen« i Dýrafirði.
á Sandi á Snæfellsnesi.
»Birkibeinar» í Mývatnssveit.
í Mælifellssókn í Skagafj.s.
í Lögmannshls. ytri í Ey.jafj.s.
í Möðruvallakl.s. í Eyjafj.s.