Good-Templar - 01.02.1898, Qupperneq 12
28
þó vita, að það sé að eins bvrjunin, að eins upphaf ann-
ars rneira, og illa þekki eg þá foringja Hlinar, ef þeir
verða lengi að fylla skörð þau, sem kunna að verða á
einstöku stað í fylkingu hennar næsta haust.
Fyrirgefið hve langorður eg hefi orðið.
Z.
Bindindisfélög.
Auk þeirra 11 bindindisfélaga, sem getið er um í
siðasta blaði, að stofnuð hafi veriö á síðastliðnu ári víðs-
vegar um landið, hefir »Good-Templar« borizt
skýrsla
um bindindisfélagið »Viljinn« í Stykkishólmi i Snæ-
fellsnessýslu.
Félagið er stofnað 5. apríl 1897. Meðlimirnir 1.
janúar þ. á. alls 34, t'undir á siðastliðnu ári samtals 9;
aðajl undur 28. desember 1897; árstillag karla 1 krória,
kvenna 50 aur.; sjóður 1. janúar c. 60 kr. Formaður
félagsirs er Sigurður prófastur Gunnarsson; auk hans
eru í félaginu ýmsir góðir menn, svo sem Sveinn Jóns-
son snikkari, Björn Steinþórsson fj'rv. verzlunarmaður
o. fl.
Ennfremur hefir verið stofnað bindindisfélag í Stærri-
Arsskógwsókn í Eyjafjarðarsýslu 10. janúar f. á.; því or
skipt i 2 deildir, fullorðinnadeild og unglingadeild; 20
ára aldurstakmark skilur deildirnar. í eldri deildinni eru
26, í liinni yngri 37. — Sjóð á félagið engan og enginn
af meðlimurn þess er í lífstiðarbindindi.
Ofdrykkjan er ein af skuggahliðum lífsins. Ilve
mörgum heimilúm liefir hún tvistrað, hve mörgum hjóna-
skilnaði komið til leiðar, hve tnargar konur gjört óláns-
samar, hve margar mæður lagt i gröfina, hve margar
systur hryggt, hve marga foreldra leitt í örvæntingu?
Enginn getur svarað rétt þessum spurniugum.