Good-Templar - 01.04.1898, Side 1

Good-Templar - 01.04.1898, Side 1
GOOD-TEMPLAR. BLAÐ STÓRSTÚKU ÍSLANDS. II., 4. Aprílmán. 1898. Með eða rnóti. Þegar að eins er að rœða utn bindindismálið, má almennt skipta mönnum í þrjá flokka, eptir því hvern þátt þeir eiga í þeim umræðum. Fyrsti flokkurinn er meðmæltur bindindismálinu, kannast við, að það sé gott og gagnlegt, jafnvel nauð- synlegt. Sá flokkur hefir gjört sér glögga grein í'yrir á- fengisnautninni og hinum skaðlegu afleiðingum hennar, og hann sér það vel, að eina ugglausa ráðið til koma í veg fyrir þessar illu afleiðingar, er bindindi, algjört bind- indi. Sumir af þeim mönnum, er þennan flokk fylla, eru bindindismenn en sutnir ekki; það eru bindindisvinir utan bindindis, þeir tala vel um bindindismálið, kannast við gagn þess og yfirburði, styðja það og styrkja, ef svo ber undir, telja menn á að ganga í bindindi, einkum þá sem breyskir eru, en geta einhvern veginn ekki komið sér til þess að ganga í það sjálfir, og geta legið margar orsakir til þess, sem ekki liggja hér fyrir. Annar flokkurinn lætur bindindismálið algjörlega hlutlaust, skiptir sér ekkert af því hvorki til né frá. Þeim finnst allt bezt sem er, eru vanafastir, kalla ef til vill bindindismálið óþarfa nýbreytni, en hafa ekki gjört sér neina grein fyrir þvi, hvort það sé eiginlega gagnlegt eða nauðsynlegt eða ekki og vilja þar af Ieiðandi engan dóm á það leggja. Hinn andlegi sjóndeildarhringur þess- ara manna er mjög svo takmarkaður, nær harla litið út fyrir þeirra eigin persónu, enda láta þeir flest það al-

x

Good-Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.