Muninn - 01.01.1964, Side 4
frægir staðir að endemum fyrir náttúru-
dýrkun og svall unglinga.
En nú hljótum við að reka okkur á dá-
iítið nöpurlega staðreynd. Unglingum inn-
an 21 árs aldurs má ekki selja áfengi! Hvað-
an kemur þá unglingunum allt þetta vín?
Það leikur enginn vafi á, að eitt af því, sem
þarfnast gagngjörrar endurskoðunar í voru
ágæta þjóðfélagi, er vor ágæta áfengislög-
gjöf. A. m. k. virðist sem svo, að næsturn
allir geti útvegað sér áfengi. Þeir fáu, sem
áfengisútsölurnar vísa frá, leita til leigubíl-
stjóra, sem margir hverjir drýgja tekjur
sínar drjúgum með ólöglegri áfengissölu,
og eru kaupendur þá aldrei spurðir um
alclur. Áfengis þessa geta svo unglingarnir
neytt því sem næst á almannafæri. Það er
ekki nema þegar úr hófi keyrir, að ábyrgir
aðilar hrökkva við eins og bitnir af lús og
klóra sér í blettinn, en drepa ekki lúsina.
Annars horfa ráðamenn þjóðarinnar sljó-
um augum á Hrunadansinn í kringum sig
og virðast bíða þess eins, að kirkjan sökkvi.
Séu þeir spurðir hverju þetta ástand sæti,
og hvers vegna ekkert sé gert til úrbóta,
yppa þeir aðeins öxlum og svara: „Þjóðin
vill þetta.“ „Hann vildi það“, sagði stúlkan,
sem átti barnið með aumingjanum. Meðan
auminginn er látinn ráða, er ekki von á
góðu. Skrílræði hefur aldrei þótt heppilegt
stjórnarfyrirkomulag. En sem betur fer
virðast þeir ábyrgu aðilar, sem lúsin bítur
livað ákafast, vera að rumska við framferði
hinnar „glæstu", ungu kynslóðar. Nefndir
eru settar, ráð eru skipuð, og það er allt
saman gott og blessað. En hvar er svo ár-
angurinn af starfi allra þessara nefnda og
ráða?
Nei, það er ekki nóg að hestum sé beitt
fyrir hlass, ef þeir draga hvor í sína áttina.
Það þarf sameiginlegt átak til að bylta
bjargi, en ekki neitt hálfkák. Þegar allir á-
byrgir aðilar sameinast í því átaki, sem þarf
til að hreinsa sorann burt úr þjóðfélagi
voru, getum við vænzt árangurs, fyrr ekki.
Friðrik Guðni.
M U N I N N
Útgefandi: Málfundafélagið
Huginn
Ritstjóri:
Friðrik Guðni Þórleifsson
Ritnefnd:
Bergþóra Gísladóttir
Páll Skúlason
Gunnar Stefánsson
Bjöm Þórleifsson
Auglýsingar:
Jóhannes Pálmason
Ábyrgðamaður:
Friðrik Þorvaldsson
Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Náttúrufræði í (5. ma.
Steindór: Meðalhæð karlmanna var
mæld nýlega, og reyndist vera 1.78 m.
Hlín: Hver er þá meðalhæð kven-
manna?
Steindór: Það veit ég ekki, þú ert langt
fyrir ofan meðallag.
Latína í 4 s. Eiríkur Ragnarsson hefur
hátt.
Eyjólfur: Eiríkur, Jregiðu og hlustaðu!
Sami, skömmu seinna: Eiríkur, vilt þú
gjöra svo vel að taka íslenzku greinina, og
lesa hana fyrst á íslenzku.
Eiríkur (les): Þegiðu og hlustaðu!
Eðlisfræði í 6. s.
Jón Hafsteinn: Sko, skynjunin er eigin-
lega logarithminn af Jrví, sem við sjáum.
Bekkurinn skellihlær.
Jón Hafst.: Þetta átti ekki að vera neinn
brandari.
32 MUXINN