Muninn

Årgang

Muninn - 01.01.1964, Side 5

Muninn - 01.01.1964, Side 5
Aldarafmœli Stefáns Stefánssonar skólameistara Það er fagur siður og menningarlegur að heiðra minningu látinna afreksmanna, og þeim sjálfum bezt, er það gera, því að það elur upp í þeim ræktarsemi og virð- ingarkennd, jafnvel þótt þetta sé ekki gert, nema á einhverjum merkisafmælum. Því er það, að vér nú minnumst aldarafmælis Stefáns Stefánssonar, skólameistara, eins þeirra manna, sem Menntaskólinn á Akur- eyri stendur í mestri þakkarskuld við. Stefán skólameistari fæddist að Heiði í Gönguskörðum 1. ágúst 1863, sonur Guð- rúnar Sigurðardóttur og Stefáns Stefáns- sonar, er þar bjuggu. Hann lauk stúdents- prófi í latínuskólanum í Reykjavík 1884, stundaði síðan nám í náttúrufræði í Hafn- arháskóla til 1887, en hvarf þá frá námi að loknu einkaprófi hjá prófessorum háskól- ans í náttúrufræði. Gerðist hann þá kenn- ari við gagnfræðaskólann á Möðruvöllum, og var hann síðan kennari við þann skóla, unz hann tók við skólameistaraembættinu 1908, en þá var skólinn fyrir 6 árum fluttur til Akureyrar. Gegndi hann því embætti til dauðadags 21. janúar 1921. Hér er ekki unnt að rekja hin fjölþættu störf Stefáns Stefánssonar. En hann bjó stór- búi á Möðruvöllum í Hörgárdal um tvo áratugi. \rar hann þá löngum í fararbroddi íslenzkrar bændastéttar um félags og fram- faramál, bæði sem einn af aðalstofnendum Ræktunarfélags Norðurlands og formaður þess um langt skeið, og á öðrum vettvangi. Alþingismaður var hann á annan tug ára og auk þess hlaðinn störfum við hvers kon- ar félagsmál, bæði meðan hann bjó á Möðruvöllum og eftir að hann fluttist bú- ferlum til Akureyrar. En geta vil ég hér stuttlega tveggja þátta starfa hans, skólamannsins og grasafræð- ingsins. Þegar Stefán kom að Möðruvöllum mátti kalla, að líf skólans blakti á skari. Stefán hóf þegar harða sókn skólanum til viðreisn- ar, og átti frumkvæði að mörgum nýjung- um í skólalífinu, sem allt orkaði á vöxt skól- ans og viðgang, sem kalla mátti óslitinn frá komu Stefáns að Möðruvöllum. Eftir að skólahúsið á Möðruvöllum brann, átti Stef- án manna drýgstan þátt í að skúlinn flutt- ist til Akureyrar, og honum var komið í samband við Menntaskólann í Reykjavík. En umfram alltréð hann mestu um, að reist var hið veglega hús Menntaskólans, sem enn stendur, af þeim stórhug og framsýni, sem fágætur var um þær mundir. Þá fékk Stefán því ráðið gegn mikilli andstöðu, að heimavistir yrðu í Akureyrarskóla. Verður það seint til fulls metið, hversu mörgum manni þetta tvennt, heimavistirnar og sam- handið við Menntaskólann, helir hjálpað áleiðis til framhaldsnáms. Otalið er þó, að Stefán var frá öndverðu sá snilldarkennari, að lengi verður til hans jafnað. Fór þar saman allt, senr kennara má prýða. Glæsilegur persónuleiki, fáguð fram- konra svo af bar, haldgóð og víðtæk þekk- ing, lifandi álrugi á fræðununr og þroska nemenda, og fljúgandi mælska. Hann sá flestum betur kjarna hvers atriðis og kunni að gera hann ljósan áheyrendum sínunr og lrreif þá um leið með andríki og eldmóði. Skólastjórn hans var nreð sönru kostunr og kennslan. Hún einkenndist af festn og frjálslyndi. En skólastjórnarárin urðu ein- ungis 12, og síðari árin átti lrann við nrikla vanlreilsu að stríða. Þess vegna þokaði skól- anum skemmra áleiðis, til þess að verða menntaskóli, en mátt hefði vænta. En Stef- án treysti svo hornsteina hans nreð þeinr orðstír, er hann skapaði skólanum, að yfir- byggingin hlaut að koma fyrr eða síðar. MUNINN 33

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.