Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1964, Síða 6

Muninn - 01.01.1964, Síða 6
Stefán Stefánsson og Steinunn Frímannsdótt- ir í Kaupmannahöfn 1887. En þótt starfa Stefáns sem skólamanns sjái lengi stað, verður þó vísindaafreka hans lengur minnzt. Hann hóf rannsóknir á gróðri landsins, jafnskjótt og hann kom að Möðruvöllum, hélt hann jicim áfram til aldamóta og liafði þá farið um mestan Iiluta af byggðum landsins. Meginárangur rannsókna hans birtist í Flóru Islands, sem hann gaf út 1901. Þar eru lýsingar allra ís- lenzkra villiplantna, sem þá voru kunnar, auk fjölmargra slæðinga og yrkiplantna. Getið er vaxtarstaða og meginútbreiðslu. Var þetta að mestu brautryðjendastarf, og Flóra í senn strangvísindalegt rit og hand- hægur leiðarvísir hverjum leikmanni, sem vill kynnast plöntum landsins. Framsetn- ingin er skýr og á vönduðu máli, en Stefán hlaut að semja nýtt fræðiorðakerfi og auk jiess nöfn á fjöldamörgum tegundum, og tókst hvorttveggja með ágætum, enda var hann smekkvís á mál og unni íslenzkri tungu og fegurð hennar. Er í engu ofsagt að kalla hann föður og höfund íslenzkrar grasafræði. Auk Flóru samdi Stefán nokkr- ar stuttar grasafræðiritgerðir og fékkst við rannsóknir á fóðurjurtum og skrifaði þar um. Þá samdi hann og kennslubókina Plönturnar. Störf og líf Stefáns Stefánssonar einkenn- ist af fegurð, bjartsýni og vandvirkni. Þeir Jrættir voru allir sterkir í skaphöfn hans á- samt mildi og samúð með mönnum og skepnum. Bera skólaræður hans þessa ljós- ast vitni. Með fjölþættum störfum sínum varð hann einn brautryðjendanna í þjóðlífi voru í byrjun þessarar aldar, og spor hans eru hvarvetna mörkuð af fegurð os: gróandi. Því hyllum vér nú minningu hans með jriikk og virðingu. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. 34 MUNINN

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.