Muninn - 01.01.1964, Page 15
þegar í menntaskóla, verður háskólanámið
þeim mun léttara. Kennslan £er að mestu
fram í fyrirlestrum, og engir eru skyldugir
að sækja þá. Próf eru sjaldan. í verkfræði
var t. d. ekki próf nema tvisvar, auk loka-
verkefnisins. Svo maður veit lítið, hvernig
maður stendur í náminu, fyrr en að skulda-
dögunum kemur. Vakna þá þeir við vond-
an draum, sem ekki kunna að nota frelsið.
— Hvernig lieldurðu að gæfist að inn-
leiða akademiskt frelsi strax í menntaskóla?
— Það tel ég varla heppilegt. Mennta-
skólar eru fyrst og fremst undirbúnings-
skólar, og fátítt, að nemendur finni hjá sér
áhuga á öllum greinum, sem þó eru þeim
nauðsynlegar. Oðru máli gegnir, jægar
komið er út í sérnámið.
— Væri þá ekki ráð að byrja sérhæfing-
una fyrr?
— Jú, ég er ekki frá }dví, að hún mætti
hefjast einu ári fyrr. Sennilega væri jró
heppilegra að vinna þetta eina ár, áður en
komið er í menntaskóla.
— Persónulegt samband kennara og nem-
enda í þýzkum skólum hefur löngum verið
rómað. Hvað getur þú sagt okkur um Jrað?
— f skólanum þar sem ég var, var það
nánast ekkert. Og þannig mun það yfirleitt
vera í tækniskólum í Þýzkalandi, því nem-
endafjöldinn er svo mikill.
— Hvað segir ]dú sem kennari um slíkt
persónidegt samband?
— Eg segi fyrir mig, að Jrað er einkum
tvennt, sem mér finnst leiðinlegt. En það
er að ferðast og kynnast fólki. An gamans
er ég J)ó ekki frá því, að persónulegt sam-
band kennara og nemenda gæti verið æski-
legt, svo framarlega sem Jiað er frjálslegt
og óþvingað. Þ. e. a s. ég er á móti Jrví, að
settar verði einhverjar reglur til að auka
það. Þegar maður kennir þetta mikið, vill
maður eiga sínar frístundir út af fyrir sig.
Og jrið eruð líklega einnig búin að fá nóg
af okkur, þegar tímum lýkur.
— Telur Jrú, að þýzkir háskólar séu búnir
að ná sér eftir áföll stríðsins?
— Nei, tæplega. Þeir misstu mikið af
fræðimönnum í stríðinu sjálfu, og aðrir
fluttust úr landi. Einnig eyðilagðist mikið
af byggingum, en mikið kapp er nú lagt á
að bæta Jrar um.
Og hvað um þýzku þjóðina?
— Það er mikill vandi að tala um heila
Jíjóð. Eg kynntist mörgum ágætis mönnum
í Þýzkalandi og á mestan part góðra minn-
inga Jjaðan.
— Hvað finnst Jrér svo um fræðslufyrir-
komulag menntaskólanna?
— í aðalatriðum tel ég það gott. En að
sjálfsögðu má ýmislegt betur fara.
MUNINN 43