Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1964, Síða 20

Muninn - 01.01.1964, Síða 20
Þaé var o Knýjandi aflvél skólans tók að ganga reglulega í byrjun nóvembermánaðar, og skólalífið fékk sinn vénjulega lit. Engar verulegar benzínstíflur né íspýtingar færðu jafnvægið úr skorðum, þótt reyndar hafi einn góður maður slegið hraðakstursmet í gegnum hliðið heim að skólanum, en því má eflaust hnekkja. Föstudaginn 1. nóv. var tónlistarkynning, og var hún skammarlega illa sótt. Um kvöldið var svo bókmennta- kynning, lesið var úr verkum Þórbergs Þórðarsonar, og var aðsókn prýðisgóð. Um þessar mundir dró upp óveðursbliku á sviði stjórnmála, en frumvarp Iiafði verið lagt fram á Alþingi um verkfallsbönn. Af- leiðingin varð mikið missætti milli nem- enda. Smáhópar mynduðust á gönguín, í stigum og stofum, þar sem menn lýstu yfir áliti sínu á yfirvofandi verkfallsbanni, og lyktaði því ætíð með eldheitum deilum. Af jtessu leiddi, að nemendur mættu of seint í tíma og voru allir í uppnámi. Var þá grip- ið til þess ráðs að ákveða allsherjar orrustu föstudaginn 8. nóv. Var henni haslaður völlur í setustofunni og ræða bæri „íslenzk stjórnmál". Fundurinn var á tilsettum tíma og frummælendur voru þeir Haraldur Blöndal og Sverrir Kristinsson. Haraldi tókst að sýna mönnum í gegnum blekking- ar sínar og sinna flokksbræðra. Heldur var þessi fundur líflítill enda flestir of sam- mála. Það kom lram á fundinum, að einn hlédrægur drengur hefur unr alllangt skeið lesið Rauðu stjörnuna (þ. e. málgagn kommúnista í U.S.S.R.) sér til dundurs, og er heiður af slíkunr málamanni. Daginn eltir þennan fund hélt Muninn dansleik á Sal. Til skemmtunar var brugðið upp mjög raunsæjum svipmyndum úr fyrirmyndar- fjölskyldulífi ásamt viðeigandi kattarsöng, en kötturinn var músíkant. Bergþóra Gísla- dóttir samdi þetta „drama“. Rósberg Snæ- dal las upp úr sínum ágætu „túristaþátt- um“. Friðrik Þórleifsson las þar á ofan lausavísur, mönnum og nrúsum til ganrans. A eftir var stiginn dans af kröftum. A dans- leiknunr voru veitt verðlaun í botnakeppn- inni, en fyrripartar voru gerðir kunnir dag- inn áður. Hjáhnar Freysteinsson hlaut verð- launin að öðru sinni. Á mánudaginn II. nóv. var mánaðarfrí, senr herjað var út fyr- ir helgina. Daginn eftir var stofnfundur hagyrðingafélagsins. Var hann á Hótel Varðborg. Borðuðu þar 8 snillingar 18 manna tertuskammt, en fátt segir af öðrunr dáðunr. A fimmtudag var fjandinn laus og farinn að busla í sjónum við Vestmannaeyj- ar, og var þar mikið eldgos. Fýsti nrarga þangað farar og gerðust sjöttubekkingar forgöngumenn, leigðu flugvél og héldu upp á föstudagsmorgun, en 5. bekkur varð að sitja heima vegna flugvélaskorts. Ferð þessi var frentur hrakleg. Veður var Irvasst og flugveiki gerði illa vart við sig meðal náttúrudýrkenda. — A miðvikudagskvöld léku Ingimar Eydal, Andrés Ingólfsson og lelagar jazz í setustofunni, og var það nrjög ánægjulegt. Sunnudaginn 17. nóv. var tónlistarkynn- ing í setustofunni. Um þessar nrundir fengu nrenntskælingar að bergja af gömlum jrjóð- ardrykk, senr Gambri heitir, og fel ég þeinr að dænra um áhrifin. Föstudaginn 22. var bókmenntakynning. Kynntir voru Norður- landahöfundar (þ. e. a. s. frá Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Danmörk), og var hún í alla staði nrjög góð. Sunnudaginn 24. nóv. hélt Óðinn málfund, og var þar rætt um •18 MUNI.NX

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.