Muninn - 01.01.1964, Side 21
atvinnumál á íslandi, og var þetta annar
fundurinn á vetrinum. Daginn eftir var
jazzkynning, og virðast nemendur hafa
einna mestan áhuga á þessari grein tónlist-
ar. Á þriðjudag kom langþráður Muninn
út, fyrsta tbl. á þessum vetri. Upp úr helg-
inni var hafinn undirbúningur að fullveld-
isfagnaðinum. Á þriðjudaginn var söngsal-
ur, voru þar brýndar og fágaðar raddir. Á
föstudag var önnur raddþjálfun fyrir 1. des.
Næsta dag, 30. nóv., voru aðeins kenndir
tveir fyrstu tímarnir, síðan var hringt á Sal,
en þar minntist Steindór Steindórsson ald-
arafmælis Stefáns Stefánssonar skólameist-
ara í ágætri og skörulegri ræðu um líf hans
og störf. Voru þarna mættir nokkrir gamlir
nemendur Stefáns, og var athöfnin öll hin
hátíðlegasta. Kl. 8 e. h. sama dag hófst full-
veldishátíð M. A. með samdrykkju í borð-
stofunni. Það duldist engum, að mjög var
til hennar vandað af hálfu 6. bekkjar. Var
þetta hóf í alla staði fjörugt, en bar þó há-
tíðlegan blæ. Gunnar Eydal flutti fullveld-
isræðuna. Jón Benediktsson, fyrrv. yfirlög-
reglujrjónn, sagði okkur lrá kynnurn sínum
af Stefáni Stefánssyni skólameistara og
skólalífinu í hans tíð, en Jón var einn af
nemendum hans og til fyrirmyndar í flestu.
Mjög voru áhrifamikil orð Brynjólfs
Sveinssonar, okkar gamla kennara, en hann
lýsti viðhorfum sínum til fullveldisdagsins
1. des. 1918, og til sjálfstæðis þjóðarinnar.
Þarna söng skólakórinn undir stjórn Her-
manns Stefánssonar, einnig var almenn
þátttaka í söng. Á eftir var farið niður á
gamla Sal. Hafði skólinn verið frumlega og
skemmtilega skrýddur. Sjöttubekkingar
virðast hafa mjög ríkt hugmyndaflug, mið-
að við allt, sem þar gaf að líta. Menn áttu
Jress kost að dvelja í dimmum kompum
helvítis eða í björtum sölum himnaríkis,
en Jjótt undarlegt megi virðast kusu fleiri
fyrri staðinn, hvað svo sem það kann að
tákna. Síðasti mánuður var mjög umhleyp-
ingasamur, og voru tíðum vond veður. En
allt er gott þá endirinn er góður. J. Á.
Bridge
í bridgeheimi M. A. hefur ekki gerzt
mikið, það sem af er vetri. Þó er tvímenn-
ingskeppni lokið. Tólf pör mættu til
keppni, og voru spilaðar þrjár umferðir.
Eftir fyrstu umferðina var engu hægt að
spá um úrslit. Að annarri umferð lokinni
fóru línurnar að skýrast. T. d. datt parið
úr öðru sæti niður í Jrað neðsta. Fyrir sein-
ustu umferð munaði 30 stisjum á 1. o°' 3.
pari. Úrslit urðu þau, að efstir urðu Har-
aldur Jóhannesson og Páll Þórðarson með
425 stig, en Jæir voru sigurvegarar frá fyrra
ári. Aðrir urðu Sigurður Hafliðason og Ei-
ríkur Ragnarsson með 379 stig. Þeir eru
jafnir spilamenn og ekki mikið fyrir fljót-
færnislegar sagnir. Þriðju urðu Jónar tveir,
annar Arason, hinn Jónsson. Þeir voru
nokkuð mistækir, og voru sérlega miður
sín í fyrstu umferð. Þeir hlutu alls 378
stig. Fjórða sætið hrepptu Guðmundur
Oddsson og Steinar Þorsteinsson með 343
stig. Þeir eru óhikandi í sögnum en full-
djarfir.
Sveitarkeppnin mun hefjast að loknu
jólaleyfi. Komið hefur til tals að hefja ein-
menningskeppni, en óvíst mun, hvort hægt
muni verða að koma Jrví við. Að lokum er
hér eitt spil, sem spilað var laugardagskvöld
eitt. Spilin lágu, sem hér segir:
Norður:
Spaði: 9, 6, 5, 2.
Hjarta: k, 4, 3.
Tígull: 5, 4.
Lauf: á, 8, 5, 2.
Yestur:
Spaði: á, 10, 3.
Hjarta: 8, 2.
Tígull: á, 6, 2.
Lauf: d, 10, 9, 7, 3.
(Framhald á bls. 51.)
MUNINN 49