Heimilisblaðið - 01.10.1923, Síða 1
XII. árg.
Ileybjavík, í október 1923.
10. tbl.
él§@t%Z2? á hausix,
____4
Hin lœkkandi sól bak oið fjöllin jer
œ fyrri hvern daginn. jwí hanstið ber
að höndum með húmdimmu kvöldin.
Og stjörnurnar djúpinu siíga frá,
sem stórmerki skaparans himin á
og lijsa upp lágnœtiistjöldin.
Nú hverfur hin sólríka sumartíð
og sölnar hin iðgrœna fjallahlíð,
j>ví níslandi náttkyljur valda;
en sumrinu eilífa segja mér frá
})œr sólir, sem himninum tindra á.
0, lof sé þér lífgjafinn alda!
B. J.
»Nýtt boðorð gef eg yður:
að pér skuluð elska hver
annantf (Jóh. 13, 34).
Uæn hiu kristilegau kæiielkn.
Drottinn, þú, sem gerðist fátækur vor vegna,
þótt þú værir ríkur og hefir lofað oss því í orði
Þínu, að þú skulir álíta, sem það sé þér gert, sem
vér gerum hinum minstu af bræðrum þinum —
vér biðjum þig auðmjúklega: Gef oss náð til að
Vern sífúsir og síviðbúnir að þjóna meðbræðrum
vorum í allri þörf þeirra, eins og vér höfum ráð
á. Pú gefur oss, hverjum út af fyrir sig, styrk til
þess . ð vér getum tekið þátt í að efla'og útbreiða
þitt blessaða riki um heim allan, þér til heiðurs
og vegsemdar, sem ert Guð allra, blcssaður um
alla eilífð! Aroen. Agúslinus.
Allir munu kannast við hina fögru sögu
frá siðustu æfidögum Jóhannesar postula.
Hann var búinn að stefna til sín öllum
lærisveinum sínum, til þess að tala við þá
fáein orð að skilnaði. Hann leit á þá með
öllum þeim kærleika, sem maður getur fal-
ið í augnaráði sínu á skilnaðarstund og
mælti um leið: »Börnin mín, elskið hver
annan!« I3á svöruðu þeir: »Faðir, þennan
boðskap höfum vér heyrt áður, þú heíir
flutl oss hann frá upphafi. Seg þú oss eitt-
hvað annað«. Pá leit hann á þá aftur full-
ur af innilegum kærleika og sagði: »Börn-
in mín! Það, sem þið hafið heyrt frá upp-
hafi, segi eg yður aftur, að þór skuluð elska
hver annam. »Já en þú hefir sagl oss þetta
siðan vér munupi fyrst eftir þér. Nú fer
þú frá oss og vér viljum svo fegnir fá að
heyra nokkur kveðjuorð til þess að hafa
til minningar um þig. Gefðu oss nýlt boð-
orð i kvöld, faðir«. t*á sagði hann í síðasta
sinni: »Börnin mín, kæru börnin mín, eg
gef ykkur nýtt boðorð, að þið skuluð elska
hver annan«.
Annað boðorð hafði hann ekki til að gefa
þeim, því að öll önnur boðorð voru fólgin
i þessu eina: að elska hver annan, eins og
Drottinn Jesús hefir elskað oss.
Eðli kærleikans er lýst svo dásamlega
fyrir oss í 13. kapítula fyrsta hréfsins til
Korintuborgarmanna.
»Kærleikurinn er langlyndur, hann er
góðviljaður«, segir postulinn í þeim kapi-