Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1923, Page 6

Heimilisblaðið - 01.10.1923, Page 6
12(5 HEIMILISBLAÐIÐ anum. Heimspeki Aristótelesar fékk nú hvert ólifissárið al' öðru. Galileo byrjaði og þótti stórhöggur og var því hafður i strangri gæ/lu siðustu ár æfi sinnar. — En það væri nú saga að segja frá honum. B. J. Öldurnar dansa við eyjar, Esjan er létt undir brún. Haustlega heiðlóan kvakar, heim er hún komin á lún. Þegar liún þýtur í ílokkum þétlum um bláloftin heið, einhver svo dularfull útþrá anda minn gripur um leið. B. J. Speki Drottins. Ágústínus kirkjufaðir var einu sinni á gangi á sjávarströndinni i djúpum hugsunum um þrenninguna eða hinn þríeina Guð. Þá kom hann auga á ofurlitinn drenghnokka, sem var að hera sjó í skel og helti sjónum i holu, sem liann hafði grafið í sandinn. »Hvers vegna ertu að þessu, drengur minn?« sagði hann við drenginn. »Eg ætla að hella öllum sjónum í holuna þá arna«, svaraði drengurinn. Ágústinus var næstum farinn að segja: »Æ, veslings einfeldningurinn«, en þá flaug honum i hug: »Þú heimskinqil Hvað ert þú að gera? ímyndar þú þér, að þú getir skilið alla leyndardóma hins eilifa og alvitra Drottins?« Ágústinus hætti við að gera sér þrenn- inguna skiljanlega, en í þess stað trúði hann á föður, son og heilagan anda. VERKSMIÐJUSTtMAN EFTIR CHARLES GARVICE. BJARNI JÓNSSON PÝDDl, (Framh.) Verkafólkið leit nú aftur hvað á annað, og einhver útslitin og kengbogin kona taut- aði: »Guð almáttugur!« »Og munið svo loks eftir því«, sagði for- maðurinn enn fremur, »að þið verðið að láta, eins og það komi flatt á ykkur, að ein- hver kemur. Þið eigið að setja upp furðu- svip og vera forvitnisleg, þegar þeir koma inn. Skiljið þið mig nú? Nei, aldrei hefi eg séð eins vesaldarlegt og huglaust fólk, eins og þið eruð!« »Og þér hafið þó verið hérna i 25 ár, herra Green«, sagði roskin kona og hló kuldahlátur. Nú leið að heimsókninni, og þessir fá- ráðs-vesalingar, sem gramdist alt hið hlægi- lega í þessum skrípaleik, lifnuðu þá að vissu leyti við, þegar þeir heyrðu vagnana koma. Formaðurinn rak höfuðið inn um dyrnar og sagði hljóðlega: »t*arna koma þeir!« Nú fóru hundruð saumavéla að þjóta af kappi, blóðið hljóp fram í kinnar hinna fölu kvenna og nokkrar ungar stúlkur fóru að raula fyrir munni sér og skolruðu um leið augum til dyra. Meðan á þessu stóð, þá fór hátiðleg við- taka fram á skrifstofu Cravenstones uppi í salnum; skrifstofan var rúmgóð og öllu þar vel fj'rir komið. Þar stóð nú hans hágöfgi, Cravenstone lávarður, hinn voldugi verk- smiðjueigandi og hinir tignu gestir um- hverfis hann. Gegnt honum stóð nú yfir- ráðsmaður verksmiðjunnar, hr. Brown; leit hann með hálfgildings undrunarsvip á hina skrautbúnu gesti, en hróðugur var hann með sjálfum sér af*þvi, hve góður leikari hann væri. »Já, eg hefi boðið fáeinum vinum til

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.