Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1923, Blaðsíða 11

Heimilisblaðið - 01.10.1923, Blaðsíða 11
HEIMILISBLAÐIÐ Að lokum varð henni að, orði: »Eg er konan hans«. Þeir gáfu henni rúm steinþegjandi og undrandi; hún gekk að rúminu, og um leið og hún kraup á kné, lagði hún stóru hönd- ina hans i hönd sína og hvíslaði svo lágt að varla heyrðist: »Það er eg, Jósef!« Svo hljótt sem hún hvíslaði, þá hafði hann þó heyrt það, þvi að samstundis opn- aði hann augun, og um leið og hann festi augu á henni, og sá þó ekkert, eftir svipn- um að dæma, þá hvíslaði hann undurlágt: »LiIian!« XIX. Brian var ekki búinn að dvelja eina slund í Liége, er hann var orðinn þess vis, að verkfall, framkvæmt með hug og drjúg- um skerl' af ilsku, æsir talsvert meira, svo að maður segi ekki, að það sé háskalegra, en öl og keilusláttur. Belgíumenn eru friðsamir og löghl\Tðnir að öllum jafnaði, duglegir verkamenn og lagnir að græða fé; en þeir eru kynblend- ingar, og þó að þeir séu venjulega jafngóð- látlegir og Hollendingarnir, bræðraþjóðin, þá gela þeir þó við og orðið fullkvikir og bráðir, og kipt að þvi leyti í kyn til Frakka. Verksmiðjur voru stofnaðar i Belgíu ár frá ári, verzlunin óx og þeir unnu frægan sigur í samkepninni við eldri markaði. En nú varð beiður himininn þrunginn skýja- klökkum verkmannauppreistarinnar, og þeg- ar Brian kom þangað, var að bresta í byl- inn. Göturnar voru fullar af verkamönnum, en verksmiðjueigendurnir vildu ekki undan láta; réðust því verkamenn á þá í ræðum og blöðum og meira en það — þeir réð- ust að þeim áþreifanlega. Þeir lömdu þá grjóti, útheltu blóði og herlið varð að kalla til hjálpar. Yflr bænum hvíldi eins og sorti ótta og ömurlegra hugboða. Konur og börn hypjuðu sig af götunum, því að verka- menn voru þar á ferðinni í hópum, með- an hinir svæsnustu voru að átta sig á mál- 131 inu, Stundum þjTrptist heill múgur saman og mátti þá vel búast við, að þeir réðust á einn eða annan, sem þeim væri í nöp við eða kveiktu í einhverri verksmiðjunni eða skrifstofu einhvers dagblaðsins. All til þessa höfðu þeim verið sýndar óhlaðnar bj^ssur, og uppreistarmenn gerðusl djarlari, því að þeir treystu því, að yfirvöldin mundu eigi beita alt of mikilli harðneskju við þá. Og er vinnuveitendur gerðu þeim kost á að semja, þá höfnuðu þeir þeim kostum með fyrirlitningu, en kröfðust þess í staðinn, að vinnuveitendur gengju Skilmálalaust að kröfum þeirra. Eins og auðvitað er, þá not- uðu margir óeiróirnar sér til hagsbóta, því að þess háttar menn eru hvarvetna, og hagnýttu sér verkfallið til þess að ná sínu marki. Allir gengu sem á glóðum og Bri- an kom einmitt í þeim svifunum, er alt var að komast í uppnám. Hann gekk þegar að sínu starfi, útbúinn með blýant og ferðabók til íritunar; hon- um var meðal annars gefin leikni í að hraðrita, hvað helzt sem hann sá, þar sem hann var þá og þá staddur. Hann gekk þegar inn í mannþröngina til þess að afia sér efnis í snjallar blaðagreinar, þvi hann var þegar orðinn frægur fyrir þær. Þetla gerði hann auðvitað, til þess að gela með með sjálfs síns augum séð alla þá neyð og volæði, sem verkfallið hafði í för með sér; en svo var hann sokkinn niður i þetta, að hann gleymdi öllum ósköpunum, sem á gengu. Hann átti aðgang að herbúðum beggja flokkanna; hann átti viðtal við vinnu- veitendur og hlustaði á málið af þeirra hálfu, og verkamenn voru líka góðir við- tekna og var mikill hugur að skýra fyrir honum málið frá sjónarmiði þeirra. Frá sjónarmiði hans sjálfs leit svo út, eins og venjulegt er, að hjá hvorltveggja væri polt- ur brotinn. Og þegar hið sama kvöld og hann kom þangað, dirfðist hann að leggja fram uppástungur til sátta og samkomulags, er báðum aðiljum mátti að haldi koma; en málið var enn komið svo skamt á veg, að það datt niður. Þvi er eins varið /

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.