Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1923, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.10.1923, Blaðsíða 7
HEIMILISBLAÐIÐ 127 min, til þess að sýna þeim verksmiðjuna, hi'. Brown«, sagði Cravenslone lávarður vingjarnlega. Andlitsdrættirnir voru elsku- samlegir, en augun voru öndótt og lymsku- leg. »Við komum alveg óvart að; oss lang- ar sem sé til að sjá alt, eins og það er í raun og veru. En af þvi að mér virtist, að réttast væri að vér birtum ekki komu vora fyrirfram, þá skal eg heldur eigi ómaka vður«. Ráðsmaðurinn hneigði sig, brosti og neri saman höndunum, en Cravenstone lávarð- ur sneri sér til gesta sinna og sagði um leið einkar ismeygilegur: »l5etta er hr. Brown, yfirráðsmaður minn við verksmiðjuna; hann er búinn að vera hjá mér nærfelt 30 ár; hann kom hingað kornungur og hefir með dugnaði sinum náð þessari stöðu; hann er mín hægri hönd«. »Eg þakka yður mm’gfaldlega, Craven- stone Iávarður«, sagði hr. Brown hæversku- lega og lét i ljósi, að hann ætti ekki þetta lirós skilið. »Eg er sjálíur mjög upp með mér af verksmiðjunni. Sérhver maður mundi vera hróðugur af þvi að vera bundinn svo mik- ilsháttar slofnun og Haliford-verksmiðjan er, einkum ef það er ábyrgðarmikil staða, sem hann gegnir. Má eg nú ekki, göfugu frúr og herrar, sýna yður verksmiðjuna?« Hann gekk nú á undan upp eftir stóra steinþrepinu, sem lá inn í eina vinnustof- una; þar voru allir að vinna í óðakappi, svo að þeir tóku ekki eftir Cravenstone lá- varði og hinum göfugu gestum hans, fyr en eftir dálitla stund; en svo hljóðnaði söngurinn og masið skyndilega, eins og eftir þegjandi samkomulagi; formaður Green lék nú sama leikinn og Brown, hann lit- aðist um eins og hann væri hissa á kyrð- inni, en alt í einu kom hann auga á, hvao þessu olli, og gekk nú til móts við höfð- ingja sinn og gesti hans. Heimsækjendur gengu nú fram og aftur um vinnustofurnar og litu íorvitnisaugum á alt þar inni — og verkafólkið starði á þá, eins og tröll á heiðrikju. »Þvi er ágætilega fyrir komið, ágætlega!« lautaði biskupinn, »en hvað hér er althreint og loftræstingin góð. Það er aðdáanlegt«. »Já, hér er sannlega alt, eins og það á að vera«, sagði stjórnarráðsformaðurinn, og kinkaði kolli til samþykkis. Hér eru þau fyrirmæli haldin út i æsar, sem lúta að verksmiðjurekstri«. »En hvað þeir eru allir hreinlega til fara«, sagði ein frúin við lafði Yivien, »og littu á, ’sumir þeirra eru bara laglegir«. »Hvaða þvaður er það svo, sem alt af stendur í blöðunum um þelta vesalings verksmiðjufólk«, sagði einhver hinna há- göfugu herra i ávitunarrómi við einn rit- stjórann, en ritstjórinn brosti við dálitið efablandinn. »Já, en þér skuluð vita«, svaraði hann, »að öllum verksmiðjum er heldur ekki stjórnað eftir manngæzku-reglum vinar vors, Cravenstones lávarðar«. Eins og auðvitað er, þá var hér haldin dálitill ræðustúfur. Hinn mikli verksmiðju- eigandi hóf upp rödd sina og sagði með smeðjulegu brosi: »Það gleður mig að sjá ykkur, verka- menn mínir. Þið vitið, að eg met ykkur sem kæra vini mina. Eg vona, að ykkur liði öllum vel. Ef þið eruð ánægðir með vinnukjör ykkar, eða ef þið haflð um nokk- uð að kvarta, þá þætti mér vænl um — já, eg á við, þá megið þið láta það uppi nú, og eg get fullvissað vkkur um, að eg tek það til alvarlegrar ihugunar. Bér getið sagl, eins og yður býr í brjósti hér frammi fyrir vinum minum«. Nú varð augnabliksþögn, en svo spralt þar upp alt í einu gömul kona, sú hin sama, sem nöldrað hafði við Green for- mann. Hún rétti út hendurnar, einsoghún ætlaði eitthvað að segja, en unga slúlkan við hliðina á henni hnykti henni aftur nið- ur i stólinn og siðan tautuðu allir einum munni — en það kom ekki frá hjartanu: »Við erum allir vel ánægðir. Okkur er ánægja að vinna í Haliford. Við höfum um ekkert að kvarta«,

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.