Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1923, Page 12

Heimilisblaðið - 01.10.1923, Page 12
132 HEIMILI nm þetta og um einhvern sjúkleik; enginn veit hvað gera skal, fyr en sótthvörfin koma, og Brian sá líka brátt, að eins og nú stóðu sakir, þá gat hann ekkert annað gert en rekið það erindi, sem honum var á hend- ur falið, rækilega og hlutdrægnislaust. Hann var aldrei heimtufrekur fyrir sjálf- an sig, og svo var enn; hann leigði sér smáherbergi í einhverri óbreyttustu götu borgarinnar og keypti sér mat á einum eða öðrum óbreyttum matsölustað, þar sem verkamenn voru líka fyrir; með þeim hætti kyntist hann vel málum þeirra. Alt af syrti meira og meira að og á þriðja degi, er hann dvaldi þar, þóttist hann sjá, að úrslita-rimman væri fyrir dyrum, Það voru fleiri en hann, sem óraði fyrir þessu; hið sama gerði konan, sem hann var hjá; það var góðlátleg kona, og sýndi hinum unga og fríða leigjanda þegar i stað móðurlega umhyggju, bað hún hann inni- lega að vera heima um kvöldið og hætta sér ekki út á götuna, því að nú mætti bú- ast við róstum. Brian reyndi að friða hana og taldi henni trú um, að hann mundi gæta sín; svo fór hann i yfirfrakkann sinn og dró hattinn langt niður á enni og stakk skammbyssu i vasa sinn, þeirri sem rit- stjórinn hafði ráðið honum til að hafa með sér. Hið fyrsta, sem honum brá við, þegar hann var kominn út á götuna, var það, að þar var svo táförult; það var um það leyti sem fólk gekk frá vinnu og konur fóru út til innkaupa; en það var eins og borgin væri dauð úr öllum æðum. Búið var að loka öllum búðum, og þeir fáu menn, sem voru á götunni, flýttusér, eins og þeirværu hræddir við eitthvað og litu til hans svo undarlega, af því að hann rölti áfram, eins og um ekkert væri að vera. Hann fór nú fyrsl þarigað, sem verkamenn áttu sam- komustað og talaði við framkvæmdarstjóra þeirra, en hann hélt, að verkfallsmenn væru ekki að undirhúa neina úrslitahrið á þvi kveldi. Það yrðu, ef til víll, nokkrar smá- skærur á götunum, sagði hann brosandi, SBLAÐIÐ en áreiðanlega ekki nreira en lögreglan gæti við ráðið og — hefði hún ekki við, þá væru hermennirnir' til taks. Hann fullyrti við Brian, að engin ástæða væri til að ólt- ast neitt. »Já, gott væri, ef svo væri«, sagði Brian. En því fór fjarri, að hann væri ugglaus, er hann gekk þaðan og inn í bakstofu á vin- veitingakrá, þar sem verkamenn voru van- ir að halda höfuðfundi sína; stofan var troðfull og loftið nær kæfandi af tóbaks- reyk. Umræður stóðu sem hæst og allir voru æstir mjög. Þar var margt manna, sem ekki hafði smakkað mat timum sam- an, en þó höfðu þeir drukkið glas af vini, og vin i lóman maga er eins og eldur í púðurtunnu. Það var með herkjum að Brian kæmist inn; tveir menn voru við dyrnar og vildu varna honum inngöngu; en hann gat talið um fyrir þeim, svo að þeir létu undan og þrengdi hann sér þá inn á milli þeirra; hlustaði hann þá á skvaldrið i kringum sig og á ræður þeirra. Einn ræðumaðurinn stakk upp á, að þeir skvldu brenna stóra verksmiðju, annar lagði til, að þeir rændu hús eins af hinum meiri verkveitendum, drægju hann sjálfan út á götuna og skytu hann síðan fyrirvaralaust, en hinn þriðji tók þó skarið af — hann vildi láta ræna alla borgina. Smámsaman skildist Brian, að þessar hótanir þeirra voru þeim full alvara. Þeir voru búnir að æsa sig svo upp sjálfir, að þeir voru orðnir eins og hálfóðir, og ef þeir hefðu sloppið í þeim ham út í borg- ina, þá málti búast við hinum ægilegustu hryðjuverkum af hendi þeirra, Brian fanst að hann yrði að reyna, hvort þeir vildu eigi gefa sér hljóð, ef hann reyndi að spekja þenna trylta skara og tala varnaðarorð til þeirra. Hann vissi það vel, að fáeinar æfð- ar hersveitir gátu skotið þessa veslings- menn niður með hríðskotabyssum, og hann áleit það skyldu sina að gera það, sem hann gæti, til að koma i veg fyrir, að til bardaga kæmi.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.