Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1916, Qupperneq 1

Heimilisblaðið - 01.02.1916, Qupperneq 1
1! Heimilisblaðið V. ÁR. FEBRÚAR 1916 2. TBL. Kkarður gónsson myndhöggvari. Nú flytur Heimilisblaðið mynd af Ríkarði Jónssyni myndhöggvara. Hann er maður á bezta aldri, Aust- firðingur að œtt, sonur Jóns bónda Þórarinssonar frá Núpi á Berufjarð- arströnd og Ólaf- ar Finnsdóttur frá Tungu í Fáskrúðs- firði, og þar er Ríkarður fæddur þann 20 sept. 1888. — Foreldrar hans fluttu með hann ársgamlan suðurað Strítu í Hálsþinghá og þar er hann uppalinn. Vorið 1905 byrj- aði hann útskurðar- nám hjá Stefáni Eiríkssyni mynd- skera, og lauk því vorið 1908. Tví- tugur að aldri fór hann til Kaup- mannahafnar og vann fyrir sér með útskurði á sumrin en stund- aði dráttlista- og myndhöggvaranám á vetrum. Sumarið 1913 kvæntist hann Mariu Ólafsdóttur frá Dallandi í Húsavík eystri og búa þau nú í Reykjavík. Foreldrar Rikarðs áttu fjölda barna og höfðu þvi ekki i afgangi. Hefir því Rikarður unn- ið sig áfram með sparsemd og dugn- aði./; í fyrra flutti „Skinfaxi“, hlað Ungmennafélag- anna mynd af Rík- arði og fylgdi mynd- inni nokkur orð um hann. Þar er í fám orðum lýst þessum unga og efnilega listamanni. Sú lýs- ing er stutt en góð og fylgir hér orð- rétt: „Ríkarðurerljós- hærður og bláeygð- ur, lágur vexti, en sterkur og fylginn sér. Hann er hag- ur á orð eigi siður en á efnivið og annað, sem mynd- ir eru mótaðar í. Söngmaður erhann ágætur, og hinn mesti gleði- og mannfagnaðar- maður, og kann eigi síður að skemta öðrum en sjálfum sér“.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.