Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1920, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.08.1920, Síða 9
HEIMILISBLAÐIÐ 121 son á Staðastað; var hann mágur og mik- vinur Jóns biskups og höfðu þeir hcitið þvi hvor öðrum, að sá sem lengur lifði, skyldi halda ræðu yfir grefti hins. Var Jón biskup nýkominn heim af Alþingi þegar hann frétti lát séra Þórðar og reið þegar af stað vestur, 26. ágúst. Þegar hann var kom- inn nokkuð á leið, kendi hann síðustings °g magnaðist hann svo, að hann varð að ijalda við Hallbjarnarvörður og dó hann þar 30. ágúst, þá rúmlega 54 ára og hafði þá verið 22 ár biskup. Hann var grafinn í Skálholti 6. september. Jóni Vídalín er lýst'svo, að hann var hár niaður á vöxt, limaður vel, friður sýnum °g tigullegur, snareygur mjög og að öllu vel farinn; hafði hreint málfæri og skýrt og var hinn snjallasti ræðumaður: hann var hinn mesti kennimaður og vandaði kenningar sínar mjög og var vandaður að þvi við aðra. Hefir verið talinn lærðastur hiskup annar en Brynjólfur Sveinsson; ktinuskáld mikið, svo að hann mælti fram vers á latínu jafnhratt og hann talaði. Það, sem gert hefir Jón biskup Vídalin ödauðlegan, er »húspostilla« hans, sem oft hefir verið gefin út og sýnir ljóslega hvert andans stórmenni og lærdómsmaður Jón hiskup var, og geta menn lært að þekkja hann af henni, þeir, sem annars vilja kynn- ast honum nú á dögum, en húspostilla hans, eins og aðrar henni líkar, verða að vikja fyrir hinu og öðru nýju, sem fólk vill heldur lesa. Jón Vidalin er þess allskostar maklegur, að honum sé reist veglegt minnismerki og ®ttu engir að nema við neglur sér framlag «1 þess, heldur gleðjast af að fá tækifæri hl að taka þált í þvi. II. Jafnvel hreinskilni göfugs manns þarf að hafa sin takmörk. ^lannlegt er að misskilja. Andinn er það, sem lifgar. inningarl jó$ eftir tvo drengi Jóns Hcigasonar, scm dóu á Eyrarbakka, með 8 mánaða millibili, 11)12 og 1913. I. Sem slokni Ijós, sem blikni blómið friða, fer barnsins líf, sem deyr á vorsins tíð, — en móðurhjarla sárin djúpu svíða, og svellur und, þar háð er dauðastrið. Það er svo þungt að sjá það sætið auða, og sonar missi harma foreldrar. En eitt er bölið, beiskara gröf og dauða — þá börnin hverfa í iðu spillingar. En móðir grætur góða, unga soninn, og gleðivana munu þessi jól, þvi mörg er undangengin gleði-vonin, og gráls i skýjum falist hefir sól. Lát huggast móðir! sæll þinn sonur lifir! þólt saman hryndi tjaldbúð likamans, og heimsins glys og ginning hafinn yfir, hann glaður býr við hjarta lausnarans. K. H. B. Ó, Drottinn minn Guð! — æ, verði þinn vilji, þú veizt hvað er bezt, þó enginn þig skilji. En — faðir! — missirinn mikill er —! Æ, miskunn, ó Guð! — við treystum þér! Við Ireystum að drenginn vorn litla þú leiðir um lundina sígrænu brautu hans greiðir. Við trúum, þar vaxi’ 'hann og verði slór, við vilum, Drollinn, hann til þin fór,- Þó okkur finnisl að sígi sólin og sorgdöpur verði blessuð jólin, við trúum, Guð, að þú gleðjir oss svo getum við borið hinn þunga kross! í guðsfriði barnið vort blessaða, unga til bústaða Guðs, eftir slríðið þunga. Við biðum og þráum þann fagnaðarfund að flnna þig aflur í Droltins lund! Einar E. Sccm.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.