Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1936, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.09.1936, Blaðsíða 8
134 HEIMILISBLAÐIÐ SKUGGINIV ■Skáldsaga, eftir George Owen Baxter. XI. Geigværdeg skýring. Tom stökk til hliðar og' leitaði sér skjóls. Fyrir utan kvað við margraddað .hróp, g-rimdarlegt eins og í glorhungruðum úlfahóp. »Þún eyðist til að flytja þig í flýti, dreng- ur minn«, sagði gamli sheriffinn með ró- legri röddu fyrir utan dyrnar. »Það væri ef til vill hyggilegast, að þú lykir við það, undir eins, í stað þess að bíða þangað til þú getur ekki meira vegna hungurs og verð- ur alveg örvinglaður«. »Hvað er það, sem þér ráðleggið mér að gera?« spurði Tom. »Til að koma hingað út og gefast mér á vald. Þá gef ég þér það loforð, að ég skal vernda þig gegn múgnum. Hér eru upp- stökkir menn og harðgerðir, Tommy, og þá klæjar blátt áfram í lúkurnar eftir að ná í þig. En ég er nú kannske örlítið harð- fengari en þeir, og þeir voga sér ekki að leggja hendur á þig, ef ég banna það. Komdu nú heldur út og gefstu mér á vald, Tommy«, sagði hann ginnandi. »Ég skal sjá um, að þú verðir löglega yfirheyrður, að myndir verði teknar af þér handa blöð- unuro, og að þú verðir hengdur eins vel og vandlega og þú frekast getur á kosið. Ég skal segja þér, Tommy. Þú kemst í blöð- in út um allan heim,. Það koma fréttaritar- a.r úr öllum áttum, til þess að sjá þig og heyra, hvað þú hefir að segja. Hver veit — það getur vel átt sér stað, að áður en þú dinglar í gálganuro hafir þú tíma til að segja frá æfi þinni og öllum morðum þín- uro einhverjum sniðugum skriffinni, sem getur fært það í stílinn og fallegan umbún- að fyrir þig. Það er áreiðanlega nóg efni í heila skáldsögu. Ég er alveg viss um, að á því mætti græða svo mikið, að nægja mundi til að koma upp spítala eða ein- hverju þesskonar. Hvað segir þú um þetta, Tommy?« Sú alvara og hæðni, sem fólst í röddu sheriffans, sannfærði Tom Converce um, að hér stoðuðu engir samningar. En hann gerði samt enn, þá eina tilraun áður en hann gaf upp alla von., »Sheriffi«, sagði hann. »Þér kallið mig Tom?« »Já«. »Þér viðurkennið þá, að nafn mitt sé Tom Converse?« »Ég viðurkenni hvaða nafn, sem þú telur þig heita«. »Viljið þér setja yður í samband við fjölskyldu mína eftir þeirri tilvísun, sem ég gef yður, og ganga úr skugga um, hver ég er?« »Hættu nú þessu«, sagði sheriffinn dá- lítið óþolinmóður. »Hefir þessi loddara- leikur ekki gengið nógu lengi? Það einasta, sem á ríður, Tom, er að koma þér lifandi í einhvern fangelsisklefanin. Þegar þú ert koroinn þangað, færðu nógan tíma til að sanna, að þú heitir tíu, nöfnum, en fyrir hverja mínútu, sem þú dregur þetta á lang- inn, safnast saman fleiri og fleiri menn og verða í sífellu grimmari. Þeir eru þegar farnir að krefjast að fá þig, en þeir verða, algerlega óviðráðainlegir, ef þú ákveður þig ekki undir eins«. »Viljið þér svara einni spurninguroinni?«

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.