Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1936, Blaðsíða 17

Heimilisblaðið - 01.09.1936, Blaðsíða 17
HÉIMILISBLAÐIÐ i4á aðu,r til þe:-s alls, er hann sýslaði, hvað sem það var«. VII. Fyrirrennarar Vatts. Eins og áður er sagt, átti Watt öft við þröng'an kost að búa og miklar áhyggjur, eins og títt er um flesta uppfundninga- menn; en aftur á móti veittist honum ,sú ham-ingja, sem er nasta sjaldgæf, að hon- um auðnaðist að ,sjá hinn mikla og víðtæka árangur af uppfundningu sinni. Gufuvélin, eins og hún kom síðast frá hendi Watts, var nú orðin nothæf til iðn- aðar og ru,ddi sér brátt til rúms í flestum iðnaðargreinum, og við það gjörbreyttust þær. Nýjar atvinnugreinar hófust: Sigl- ingar, verzlun, samgöngur milli þjóðanna, bréfaskifti. 1 stu'.tu máli: öll friðsamleg störf jukust og efldust að mun fyrir æíi- starf hans. — Fyrirrennarar Watts í gufuvélagerðinni voru- aHmargir. Sjómaður einn á Spáni, Vauco de Garay fann upp vél (15:5), er hann ætlaði að knúið gæti skip áfram og mætti hún bæði koma í stað stýris og segla. En hún var ekki nothæf, margbrotið smíði á henni, dýr og hættuleg að vitm sjónar- votta. Merkilegri var ketill sá eða pottur, sem Denis Papin smíðaði. Það voru. tveir járn- strokkar hvor innan í öðrum. Var sá ytri miklu þykkri og sterkari. 1 hann var helt vatni því, er hita skyldi, en í innri strokk- inn var látið kjöt, be'n og fleina er sjcða skyldi. Lokið á kallinum var skrúfað fast a hann og á því var öryggisloka, eins og siðar á gufuvélunum: fann Papin hana fyr,stur upp 1688. Loka þessi sagði tii, er þrýsting gufunnar í katlinum var orðin meiri en ketillinn hefði þolað. Vegna hinn- ar afarmiklu gufuþrýstingar og- hins háa hitastigs í katlinuro, yfir 100° stig, þá m&tti sjóða öll næringarefni úr k.öti, bein- Um °- frv. miklu gjör en við venjulega Suðú (við 100° hita). Ketill þessi var eins konar suðuáhald, handhægur í fjallferðum og loftferðum, þar sem v,atn sýður langt fyrir neðan 100°. Gufuvélin hans va,r eirstrokkur, lokaður að neðan en opinn að ofan. Með því að þétta gufuna undir bullunni varð þar allmikið lofttómt rúm og þá knúði loftþunginn bu.ll- una niður. I þessari vél unnu því lcftþrýst- ing og gufukraftur saroan að því að hefja ög fella bulluna. Næst má nefna enskan farmann, Tliom- as Savery. Hann sm'ðaði vél, sem komst nær þeim vélurn, sem nú tíðkast og var fyrsta vélin, sero nothæf var til léttis við að dæla vatn úr námum, enda kallaði hann hana »vin námumannianna eða málmnen> anna«. I þeirri vél var engin bulla í strokkn- um, Par voru gufan og loftþrýstingurim: samverkandi. Þessa vél endurbætti svo Englendingur- inn Newcomen eða öllu heldur breytti henni. Fyrsta gufuvélin hans var notuo 1705 til að dæla vatn úr námunum í Korn- wall. I þeirri vél var það enn aðallega loft- þrýstingin, sem hreyfingunni olli, en samt var hún einskonar sambandsliður milli eldri gufuvélanna og hinnar fullkomnu g-ufuvélar Watts. Strokkurinn var þar lak- aður að neðan og opinn, að ofan og gufan lyfti bullunni upp, en loftþrýstingin niður, er gufan kæld með því að .hleypa köldu vatni inn í strokkinn, eins og fyr er sagt. Á katlinum var öryggisloka, er opnaðis: jafnskjótt sem gufuþrýstingin varð of mik- il inni fyrir. — 7. orðskviðir fró Vestur-Afríku. Góður maður deyr aldrei. Sá, sem fyrstur gjörir rangt, er oft sá, sem fyrstur hlær, þegar aðrir gera það. Sú hæna má ekki forðast regn, sem vill finna orma. — Pað má heldur ekki sá ferðamaður gera, sem vill ná marki sínu. Lygin fer þvert i gegnum þau tré, sem stöðva sannleikann. Láttu hendina vera sistarfandi, en ekki munn- inn. Góða tækifærið, sem menn gefa ekki gætur, kemur aldrei aftur.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.