Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Qupperneq 18

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Qupperneq 18
58 HEIMILISBLAÐIÐ Synishorn af egypzkri málaralist. gefa okkur því betri hugmynd um liina grísku listastefnu yfirleitt og er aldir líða fram, held- ur húu innreið sína einuig inn á svið málara- hstarinnar og hefir vísast gert strax hjá Grikkjum, þótt þau verk hafi ekki staðizt tönn tímans, eins og steinninn, sem meitlað- ur var. Grískir listamenn voru til þess fengnir að skreyta hof guðanna listaverkum. Eitt aðal- atriðið var að sjálfsögðu líkneski guðsins. Grikkir litu á guðina sem fullkomna menn, fegurri og glœsilegri en hina jarðnesku. Lista- mennirnir urðu því að taka til nákvæmrar athugunar líkamsbyggingu mannsins og meitla fram það fegursta, sem finnanlegt var. — Það er þó eitt höfuðeinkenni á liöggmynda- list Grikkja hve mikla þekkingu þeir hafa haft til að bera á líffærafræði (anatomy). Höggmyndir þeirra af guðum og gyðjum er eim liámark og fyrirmynd þess, sem gert lief- ir verið á því sviði, og nakinn mannslíkam- inn hefir aldrei hlotið jafn glæsilegan minn-. isvarða og í verkum þessum. Jafnhliða liöggmyndalistinni dafnaði fín- gerð skreytingarlist og náði mikilli fullkomn- un. Skrautker frá þessum tímum eru fagur- lega greypt myndum. Myndirnar eru ýmist trúarlegs eðlis, atriði úr sögu guðanna, eða atburða úr lífi einhverra liinna mörgu þjóð- hetja; stundum voru kerin og skreytt ineð myndum úr daglegu lífi. Á nýlenduöld Grikkja, sem talin er frá 800 —500 f. Kr. stofuuðu Grikkir margar nýlend- ur á Suður-Italíu og Sikiley. — Kvað svo mik- ið að þeim, að Suður-Italía var kölluð Grikkland hið mikla. Þang- að barst grísk menning og list, en þaðan til Mið- og Norður-Italíu. Rómversk myndlist er því sam- bland af grískri list og etrúriskri: dregur nafn af Etrúríu, héraði því, sem nú heitir Toscana, en þar bjó sérstök þjóð með sérstæða menningu. Þegar Rómverjar voru orðnir drottnendur heimsins varð það altítt, að þeir fengju til sín gríska og etrúriska listamenn. Þeir áttu að skreyta liýbýli líöfð- ingjanna, en þó sér8taklega að lofa keisarann í verkum sínum, og mikla sigra lians og landvinninga. Keisarinn var einvald- ur og tignaður sem guð. Listamennirnir urðn eins jconar málaliðar hans og voru í efnis- vali háðir hinu aldrottnandi valdi hans. Eðli- lega liafði keisarinn mikla tillineigingu á svip- aðan hátt og Faraóarnir til að gera listina ægjandi, en áhrif liins frjálsa anda frá Grikk- landi urðu henni síðast vfirsterkari. Hin byzantiska list. Konstantínus keisari mikli veitti kristnuni mönnum trúfrelsi árið 313. — Hann reisti nýja borg í austurhluta rómverska ríkisins og gerði liana að höfuðborg vegna þess, að hon- um þótti Róm illa í sveit komin sem stjórn- armiðstöð hins víðlenda Iieimsveldis. Ein- hverju mun jafnframt liafa um ráðið, að Capitolum og aðrir fornhelgir staðir í Róni voru þymir í augum kristinna manna. Þessi borg var Byzantium, síðar nefnd Konstantin- opel. Til hennar lögðu þrenns konar meiin- ingarstraumar leið sína. 1 fyrsta lagi frá Róm; í öðru lagi frá Gyðingum, sem lögðu strangt banu við að gera myndir af Guði sínum; í þriðja lagi frá Alexandríu, sem varð á dög- um Alexanders mikla (d. 323 f. Kr.) miðstöð grískrar menningar. I þessu andrúmslofti þró- aðist liin nýskapaða kristna lisl og íklædd- ist þar sérstæðum búningi. Spor kristinnar myndlistar má rekja til „katakombanna“ í Róm, neðanjarðarganga, þar sem hinir fyrstu kristnu menn voru jarð- settir. Þar var jafnframt samkomustaður frumkristna safnaðarins þar í borginni, með-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.