Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Síða 36

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Síða 36
76 HEIMILISBLAÐIÐ gtöfum. Ef til vill hefir liúu haldið, að ég myndi lirærast til meðaumkunar á síðasta augnablikinu og taka liana með mér. Mér þótti þetta mjög leitt, en mér var alveg ' ómögulegt að hafa hana með mér til Moskva. Á aðfangadagskvöld jóla 1584 vorum við bæði aftur lieima. Feodór var koininn til valda og ég fékk leyfi til að fara heim og sjá foreldra mína. Annita var að byrja nítjánda árið og hafði stækkað svo mikið, að hún var orðin jafnliá móður miniii. Hún var beinvaxin stúlka með yndislegum hreyfingum, liafði feiknamikið ljóst liár, sem var lítið eitt hrokkið yfir gagn- augunum. Hún var ennþá í nunnuklæðnaðin- um og liafði á þessum þremur áruin breytzt í unaðsfallega nurinu. En einkum var það tvennt, sem hóf Annitu yfir allar aðrar kon- ur, sem ég hafði séð, en það voru hin stóru augu og hið yndislega töfrabros hennar. Bros Annitu gat enginn staðist, hvort lieldur var karl eða kona. Ég tók oft eftir því, að þeg- ar Annita kom inn þar 6em margir voru fyr- ir, þá var jafnan eins og sólgeisli færi um herbergið. Það bar oft við að allir sátu þög- ulir og virtust ekki vera í léttu skapi, en und- ir eins og Annita kom lék gleðibros á hverju andliti og allir urðu glaðir og kátir. I þetta skifti hljóp Annita ekki upp í fang- ið á mér eins og hún var vön, heldur stóð hún grafkyrr og rélti mér aðeins hendina er hún heilsaði mér. „Jæja, Annita“, sagði ég, „ertu ekki glöð yfir því að ég er kominn heim aftur“. „Jú“, sagði hún, „ég er mjög glöð“, og brosið kom fram, þegar hún leit til mín. Að horfa inn í þau augu var eins og að líta nið- ur í tærustu kristalslind. Þar voru engin leyndarmál á botninum. Engin ástríða hafði gruggað það djúp. Augnaráð hennar var barnalegt, lireint, einfalt og sakleysislegt. Og þegar hún opnaði hin stóru augu sín og festi þau á einhverjum fannst hverjum, sem fyr- ir því varð eins og liann væri umvafinn un- aðssamlegu töfraljósi. Ég var miklu liærri vexti en liún, og þeg- ar hér var komið sögunni var ég orðinn stór og sterkur maður, og oftsinnis liafði ég hlaup- ið með Annitu í fanginu. Hún var þá vön að rífa í hárið á mér og hrópa: „Hlauptu, hlauptu liesturinn minn, fljótara, fljótara“. Mig langaði nú til að gera hið sama og lézt ætla að taka hana upp, en Annita hló og hljóp í burtu. „Nei, þakka þér fyrir, ég er of stór nú, þú getur ekki borið mig“. „Ég get reynt það“, sagði ég. „Nei, þú færð ekki leyfi til þess“. „Á ég aldrei að fá að bera þig oftar?“ „Kannske í annað sinn“. Daginn eftir átti ég að lieilsa nábúa okk- ar, sem átti lierragarðinn, sem lá næst okk- ur. Dóttir lians, sem vare inkabarn, var stór vexti og hraustlega byggð. Við vorum hér um bil jafngömul og höfðum leikið okkur saraan í æsku. Foreldrar okkar höfðu fyrir löngu ákveðið að við yrðum lijón, til þess að báðir herragarðarnir gætu sameinazt. Við vissum þetta bæði, og lxvorugu okkar liafði dottið í hug að mótmæla þessum ráðstöfiui- uin foreldra okkar. Þú veizt, faðir Gurij, að rússileskur hús- faðir hefir ótakmarkað einveldi yfir húsi sínu og skylduliði. Enginn maður hefir rétt til þess að mótmæla ákvörðunum hans, ekki sinni öldungar bæjarins, og jafnvel ekki sjálf- ur keisarinn. Húsfaðirimi er hafinn yfir lög- in. Hús hans er ekki einungis vígi, heldur einnig kirkja, og sérhver athöfn hans er heilög. „Tvenns konar vilja í einu húsi“. segja Rússar. „Nei, það myndi vera ómögulegt, það get- ur ekki farið vel“. Ivan faðir minn er mjög harður maður, og oft beitir hann grimmd við undirmenn sína,

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.