Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1968, Page 4

Heimilisblaðið - 01.11.1968, Page 4
Henni hafði verið tekið með mikilli hrifn- ingu fram að þessu, en nú fór fylg'i hennar að snúast við. Hún vildi halda baráttunni áfram, þangað til síðasti Bnglendingurinn hafði verið hrakinn úr landi, en samvista- mönnum hennar, konunginum og hershöfð- ingjunum, fannst nóg hafa áunnizt, og þeir kusu heldur að komast að samkomulagi við óvininn á grundvelli þess, sem áunnizt hefði. Mönnum fór, í stuttu máli, að finnast hún valda erfiðleikum. Afleiðingin varð sú, að hún fékk ekki þann stuðning, sem hún þurfti t.il fyrirætlana sinna, og árið eftir, þann 24. maí, tóku Burgundar hana til fanga við Com- piégne. Þeir seldu Englendingum hana fyrir 10,000 franka, sem var geysihá upphæð eftir þeirra tíma mælikvarða, og var talið hæfilegt lausnargjald fyrir konung, og hún var ákærð fyrir villutrú og galdra. Þar sem bæði Rann- sóknarrétturinn og háskólinn í París gerðu kröfu til þess að dæma hana, kom mönnum saman um að mynda dómstól með 60 dóm- urum, skipaðan fulltrúum frá báðum þess- um aðilum. Málaferlin fóru fram í Rouen og enduðu með því, að kveðinn var upp yfir henni dómur og hún brennd á báli, án þess að konungurinn eða nokkur annar þeirra, sem áttu lienni að þakka björgun sína og velferð alla, lireyfðu hönd til þess að koma henni til hjálpar. Það eru þessi svik, sem framin voru gagnvart henni, þrátt fyrir ein- stæð afrek hennar, sem gera persónu hennar og örlög svona merkileg og sorgleg. Bn það gagntekur og hrífur mest af öllu að fá að kynnast persónu hennar og manngildi við lestur málsskjalanna. Hiin var algerlega látin eiga sig, á meðan á málaferlunum stóð, án nokkurs verjanda, svikin og yfirgefin af öll- um. Það var farið með hana til réttarpróf- anna beint. úr fangelsinu, þar sem hún var í strangri gæzlu nótt og dag og hlekkjuð á höndum og fótum. Þrátt fyrir það tókst henni — þó að liún væri ólærð og ,,þekkti hvorki A né B“, eins og hún komst að orði, og þó að dómarar hennar væru vitrustu og lærðustu menn þeirra tíma — að standast í þrjá mánuði allar tilraunir þeirra til þess að koma henni til þess að hlaupa á sig, svo að þeir urðu að síðustu að grípa til beinna svika til þess að geta vfirleitt dæmt hana með yfirskyni laga. Hún var, þrátt fvrir vitranir sínar og raddir, sízt af öllu draumóramanneskja eða sveimhugi. Mest áberandi hæfileikar hennar eru þvert á móti framúrskarandi vitsmunir, óviðjafnanlegur hæfileiki til þess að hitta alveg í miðdepil hvers máls. Hún opinber- aði þessa eiginleika þegar á fyrsta degi mála- ferlanna. Hún er hvött til þess að sverja, að hún skuli segja sannleikann um það, sem hún er spurð um, og svarar: „Ég veit ekki, um hvað þið æt.lið að spyrja mig. Ef til vill spyrjið þið mig um eitthvað, sem ég get ekki sagt ykkur. Bg skal vinna eið að því að segja sannleikann um allt, sem ég hef aðhafzt í Prakklandi. En ég hef ekki sagt neinum frá þeim opinberunum, sem ég hef fengið frá Guði, nema Karli, konungi mínum, og ég segi ykkur ekki heldur frá þeim, þó að þið höggv- ið höfuðið af mér fyrir það, af því að ég lief fengið þær í vitrunum, og mér er bann- að að segja frá þeim". Á hverjum degi mæt- ir hún sömu áskoruninni, að sverja, og svar- ar sífellt: „Hvers vegna spyrjið þið mig aftur? Ég hef þegar svarað. Ég skal svara öllu, sem viðkemur málaferlunum, en ekki því, sem ég hef svarið að opinbera ekki. Yilj- ið þið þá, að ég verði meinsærismanneskja?11 Hún er ekki lirædd við að bregða fyrir sig kímni og setja ofan í við dómarana, ef þeir fara út fyrir það, sem viðkemur málaferlun- um. I miðri flækju undirbúningslausra og tilgangslausra sppurninga, er hún sii eina, sem heldur sig við efnið. Einu sinni, þegar salurinn var fullur af hrópandi áhevrendum og dómararnir töluðu hver í kapp við anu- an, greip hún fram í fyrir þeim og sagði: „Fríðu herrar, einn í einu!“ Því er haldið fram livað eftir annað, að hún hafi sagt annað, við ákveðið tækifæri, í fyrri yfir- heyrslum. „Gætið þá í skýrslurnar,“ svarar hún, og í hvert sinn kemur í ljós ,að hún hefur rétt fyrir sér. „Gætið í skýrslurnar frá þessum og þessum degi, þar munið þið fina það,“ segir hún einn daginn, og það reyndist. rétt. Sífellt er nauðað á heuni með spurningum um það, hvernig heilagur Mika- el, Ivatharina og Marguerite, sem birtast henni, líti út.. Hafa þau vængi ? Hár ? Höfuð ? Kórónur? Föt? Hringi? Yar Heilagur Mika- el nakinn? Hefur hann skrifað henni bréf ? Hefur hann sagt nokkuð um, hvort hún sleppi iit úr fangelsinu? „Iíaldið þér, að Guð hafi ekki föt til að gefa lionum til þess 224 HBIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.