Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1968, Side 14

Heimilisblaðið - 01.11.1968, Side 14
Þar sem skuggann af honum bar á Eftir MANUEL KOMIÍOPF Hann kom einn. Fram undan honum voru múrar Jerúsalem. Ilann nam staðar andar- tak undir gömlu sedrustré til þess að hvíla sig í forsælu þess. Þaðan gat að líta til róm- versku varðmannanna, sem gengu taktföst- um skrefum fram og aftur fyrir framan múr- vegginn. Geislar hnígandi sólar glömpuðu eldrauðir í brynjum þeirra og spjótsoddum. Sólin var lágt á lofti úti við sjóndeildar- hringinn í fjarska. Hún líktist krystalskúlu, fullri af víni, víni, sem er eimað í himnin- um, af árgangi, sem maðurinn hefur ekki bragðað enn þá. Sami rauði liturinn, sem glampapði í spjót- um varðmannanna, myndaði daufar, pur- purarauðar útlínur um gömlu, kræklóttu greinarnar á sedrustrénu. Yeðráttan hafði pínt þessar greinar í hundrað ár, stormur, hiti, kuldi og regn höfðu myndað hrukkur og ör á lifandi stofn strésins, og dró rauða línu meðfram hörðum, kræklóttum greinun- um. Yarðmennirnir gengu taktföstum skrefum fram og aftur í fjarska. Friður hvíldi yfir öllu. En allt í einu tók trjástofninn á sig mynd tveggja sterkra glímumanna. Krækl- óttu, hrufóttu greinarnar urðu að vöðvum úr holdi og blóði með æðaslætti . . . Ókunni maðurinn fékk tilkynningu um það við borgarhliðið, að lokunartíminn væri nærri. „Eftir stundarfjórðung gellur lúðurinn við, og klukkurnar hringja, og hliðunum verður lokað,“ sagði einn hermannanna. „Þess vegna hefur þú, ókunni maður, að- eins stuttan tíma, þangað til þú verður að snúa við.“ Blindur beiningamaður, sem hafði setið allan daginn á jörðinni með leirskálina sína, til hliðar við borgarhliðið, stóð skyndilega á fætur, dró djúpt andann og gekk á eftir ókunna manninum inn á götur borgarinnar. „Sjáið þarna,“ sagði einn hermannanna. „Það er eins og blindi Sál viti, hverjum hann á að fylgja. Hefur hann ef til vill hevrt um spámanninn, sem væntanlegur er fra eyðimörkinni til þess að tala til mannfjöld- ans V‘ „Heldur þú, að þessi spámaður geti gei't kraftaverk?“ spurði annar hermannanna. „Nei, alls ekki!“ „Hann líkist alveg okkur hinum, að sögn, og ég trúi ekki sögunum, sem sagðar eru um hann,“ skaut þriðji hermaðurinn inn í- „Ef við sæjum það með okkar eigin aug- um, yrðum við þó að trúa því,“ mælti fjórði hermaðurinn. Þeir tóku að segja þær sögur, sem þeif höfðu heyrt um þennan spámann, og þannig tókst þeim að stytta sér stundir, þangað til næturverðirnir tóku við skyldustörfunum af þeim. Blindi Sál fylgdi ókunna manninuiu- Hinn einkennilegi og óskýranlegi kraftur, sem er veittur þeim, er lifa í myrkri, leiddi hann allan tímann áfram. Stundum var hann aðeins eitt eða tvö skref fyrir aftan ókunna manninn, en við og við nam hann staðar til þess að hlusta, og við það varð hann bæði átta og tíu skrefum á eftir ókunna manniu- um. Hann heyrði allt, en sá ekkert. Og viðburð- irnir tólf, sem gerðust skjótt, hver á eftir öðrum, gerðust á tólf stuttum mínútum. Blindi Sál heyrði unga konu syngja, en hann sá ekki, að hún sat fyrir framan spegil og var að greiða hár sitt, um leið og lnxn dáðist að sinni eigin fegurð. Skugga ókunna mannsins bar á vegginn í stofu liennar. Söng- ur hennar þagnaði skjmdilega, og greiðan datt úr hendi hennar. Síðan heyrðist rödd hennar aftur, er hún ávarpaði einhvern, sem stóð í nánd við hana, og blindi maðurinn heyrði orð hennar. „Hve lengi fæ ég að halda fegurð minni ?“ spurði hún. „Fáein ár enn þá,“ svaraði önnur rödd. „Og hvað þá?“ „Snúðu þér við og sjáðu!“ „Ég verð líka gömul? spurði konan. „Og lifir mörg ár, vona ég þín vegna.“ 234 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.