Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1968, Síða 19

Heimilisblaðið - 01.11.1968, Síða 19
BONORÐ Eftir MARÖUERITE COMERT Þessi smásaga kennir okkur, að það er ekki ávallt þannig, að allt sé komið undir púðri og varalit. Nicole hljóp í brennheitu sólskininu, eins hratt og hún gat, í heitum sandinum, sem rann inn í flegna skó hemiar. Hún hljóp á ská yfir mannlausa ströndina, og þegar hún Var komin alveg niður að fjöruborðinu, að ^ygnu hafinu, þar sem hái Pimm-fingra-klett- Urinn varpaði skugga sínum yfir ströndina, fleygði hún sér endilangri niður. Þá fyrst gaf hún sorg sinni lausan taum- ^ni, fól andlitið í handleggjum sínum og grét með ekka til þess að lina hjartakvöl sína. Hitinn kemur niður af himninum eins og Hráðið blý, og spegilslétt hafið hlustar ekki a grátekkann. Hvorki himinn né haf hefur ^ieðaumkun með ungu stúlkunni. A grasi vöxnum hjalla Grand-Hótels situr Jaeques Evrard og Myriam Jougla. Kokk- teilgiös þeirra standa fyrir framan þau, og s°li)i gyllir gljáandi drykkjarstráin, sem stungið er niður á milli ísmolanna. Ungi mað- llrinn og unga stúlkan sitja þögul og horfa dreymandi augnaráði fram fyrir sig. któðir Myriam situr í hægindastól í skugg- sselu horni og blundar eða læzt gera það. Hún telur það skyldu sína að loka augunum, á 'neðan dóttir hennar er að gefa undir fót- 1,111 ungum manni, sem hefur til að bera alla f)á eiginleika, sem unnt er að krefjast af tengdasyni. Jacques Svard er foreldralaus ungur mað- Ur, sem hefur kunnað vel að fara með auð- æfi sín og liefur tekizt að afla sér góðrar stöðu í verltsmiðju Vandrohens. í þessari andrá horfir hann svo ákaft og rannsakandi á ljómandi andlit Myriam, að astleitna unga stúlkan verður óróleg við það. Hún teygir sig taugaóstyrk eftir silkivesk- ,ni1 sínu, sem er úr sama efni og rósótti silki- kjóllinn hennar og barðastóri hatturinn, sem Vlur ljóst hárið. Hún opnar veskið, horfir mjög vandlega á sig í speglinum og notar tækifærið til þess að púðra svolítið á sér nefið og strýkur síð- an varalitnum yfir varir sínar. „Þér eruð sannarlega nógu falleg,“ full- vissar Jecques hana um. Honum finnst það ekki viðkunnanlegt, að hún skuli nota fegr- unarlyfin, sem aðeins eiga heima í snyrti- herberginu, í návist hans þarna úti á miðjum hjallanum. Hún skilur ekki, hvað liann er að hugsa og segir ástleitin: „Pinnst yður í raun og veru, að ég sé nógu falleg? En ég vil vera meira en það.“ „Hvers vegna?“ „Ja, gizkið á það.“ Hann heldur að vísu, að hann geti gizkað á, hvers vegna, en hann finnur ekki til þeirrar fullnægju við það, sem hann hafði hugsað sér. „Gizkið þá á það!“ endurtekur Myriam. Hún horfir á hann dreymnum, hálflokuðum augum, og hún brosir ögrandi brosi, svo að hvítar tennur hennar koma í Ijós. Nú vill hún nefnilega fá reglulega ákveðna úrslita-yfirlýsingu, sem hann hefur aldrei komið með í hennar eyru. „Eg ætla ekki að segja já strax,“ hugsar hún, „það þarf að kvelja hann svolítið áður.“ Hún er alveg viss um, hvað hann ætlar að segja við hana. En hann þegir þrákelknis- lega, og til þess að binda enda á þögnina, sem komið hefur, stingur hún drykkjarstrá- inu upp í sig og sýgur tvo munnsopa upp úr kokkteilglasi sínu. Síðan leggur hún báða olnbogana á borðið og tekur utan um glasið með grönnum, hvítum höndum sínum. Það hringlar í gull- og silfurhringjunum, sem hún hefur um handleggina, við hverja hreyfingu hennar. Svolítið af rauða litnum SeimilisblAÐIÐ 239

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.