Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1968, Síða 30

Heimilisblaðið - 01.11.1968, Síða 30
tilgátu eða skýringu. „Og ég verð að fara að hugsa um matinn,“ sagði hún aðeins. „Jill, vertu svo væn að fylgja Andrew til dyra; komdu svo fram í eldhús og segðu mér allt af létta. Eg er að sálast úr forvitni. Um ykk- ur Nin, á ég við. Þetta eru vissulega þær mest spennandi fréttir og jafnvel ótrúleg- ustu, sem ég hef heyrt árum saman.“ Hún kyssti Jill á vangann og rétti And- rew höndina. „Vertu sæll, Andrew. Slæmt, að þú skulir þurfa að fara, en ég vona að þú finnir Cathrine. Kannski hiin sé komin heim núna, ég væri ekkert hissa á því.“ „Kannski,“ sagði hann efins. „Vertu sæl, Joss.“ Jill dokaði við. Hana langaði ekkert til að verða Andrew samferða út í hílinn. Sízt vildi hún verða ein með honum þessa stund- ina. En Andrew tók ekkert tillit til slíks, heldur greip í handlegg hennar og sagði ákveðinn: „Vinkona. Þú kemst ekki undan þessu. Komdu — mig langar til að tala við þig.“ „Og heldurðu að mig langi eitthvað sér- staklega til að tala við þig?“ spurði Jill. „Nei, það lield ég ekki,“ svaraði Andrew hinn rólegasti, „en engu að síður skaltu gera það, fyrr eða síðar.“ Hann leiddi hana rösklega gegnum forstof- una, kastaði kveðju á Niall, yngsta son Joce- lyn, sem stóð á stigapallinum. „Flýtum okk- ur,“ sagði hann, „annars eltir strákurinn. Ég er búinn að lofa honum því að fara með hann í bílnum, og hann hefur masað um það alltaf síðan.“ Ilann lét aftur á eftir þeim xitidyrnar, stundi svo við. Um leið kom hann auga á Land Roverinn við liliðina á sínum eigin bíl. „Er ekki þetta bíllinn okkar ? Var það hann, sem þið Nin voruð í?“ „Já,“ anzaði Jill og kinkaði kolli. Bros Andrews var mjög óskammfeilið. „Mjög rómantískt,“ sagði hann. „Vesalings gamli Nin — ég liefði lánað lionum Bentley- inn, ef ég hefði vitað hvað hann hafði í hyggju. En svo ég víki úr einu í annað: Hvar er Nin?“ Jill hafði búizt við þessari spurningu og yppti öxlum. „Eg veit það ekki. Langar þig til að tala við hann?“ „Ekki beinlínis. Segðu mér —“ Andrew greip alvarlegur í upphandlegg hennar. „Eg * 11 trúi þessu ekki. Eg trúi ekki orði af þessu. „Hverju?“ „Ég trúi því einfaldlega ekki, að þið Ni° séuð trúlofuð.“ Jill sýndi honum hringinn aftur, ofur r°' leg. Hann hló við. „Já, að vísu ertu nieö þennan hring; já. Hið ytra og sjáanlega tákn- En hann er bara fyrirsláttur. Og runnið un<l- an þínum rifjum, get ég hugsað mér. Ekki Nins.“ „Hvers vegna heldurðu það?“ „Vegna þess að ég þekki Nin,“ svaraði Andrew fastur fyrir. „Og vegna þess að ég er farinn að þekkja þig. Jú, ég viðurkennn að ég var hátt uppi þarna um kvöldið. Lu sagðir mér hver þú varst, og að þú vtenr að fara til Lorne; þá komstu í rauninni iUa . í ( við mig. Mér hefur sjaldan liðið eins illa- „Eða hagað þér verr, ha?“ spurði Ji^ ásakandi. „Ég þykist vita, að þú hafir fjriur sið að gera hlutina í blóra við Nin.“ „0, við lékum slíkt báðir sem strákar, sagði hann og brosti. „Það var auðveldara í þá daga, því að þeir voru fáir sem þá gátn séð mun á okkur. Og þetta var að þinm ósk, ekki satt? Ég á við, að þú gafst mér að vissu leyti liugmyndina.“ Hann reyndi að stæla rödd hennar og látbragð, háðslegur a svip: „Þér eruð Ninian Moray — ég meina Ouise lávarður, er ekki svo?““ „Þú hefðir ekki þurft að samsinna því! „Stúlka mín, ég var ekki, að „samsinna því, eins og þú kallar það. Ég gleymdi bara að vera ósammála. Iívað gat ég gert? Það hefði kostað fjölmargar útskýringar, ef ég hefði átt. að fara að segja allan sannleik- ann.“ „En þii vissir ofur vel, að ég vildi vita sannleikann.“ „Að vísu,“ viðurkenndi hann. „En ég fékk þó tíma til að — kasta mæðinni, ef svo ma segja. Ég hugsaði mér alltaf að heimsækja þig þegar þú kæmir hingað norður eftir og segja þér hvernig í öllu lægi. Mér datt ekk* í hug, að þú ættir eftir að verða svona óþæg1' leg. Þá datt mér heldur ekki í hug, að Þu liittir Nin í járnbrautarlestinni — það var þó furðuleg tilviljun, finnst mér.“ Tlanu virti hana fyrir sér tortrygginn og bætti við; „Ég held þú hafir hitt hann þar af ráðm um hug!“ Jill hristi höfuðið. „Það gerði ég ekki.“ 250 H B IM IL I S B L A Ð 15

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.