Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1973, Page 36

Heimilisblaðið - 01.08.1973, Page 36
að ég get ekki náð í þá, svo að liann er því viss um, að hann getur fengið bæði bæinn og jörðina“. Gústi litb grét sig í svefn nóttina eftir; en fyrst bað hann þó góðan Guð hjálpar. Og um nóttina dreymdi hann undursainleg- an draum. Hann dreymdi, að til sín kæmi grár maður, lítill vexti, fast að rúminu sínu, og segði við hann, að hann skyldi fara á fætur og verða sér samferða. Og litli mað- urinn fór með hann upp að háum kletti, sem var á einum stað í landareign föður hans. Svo rétti hann honum hamar og sagði, að hann skyldi slá þrjú högg á klettinn. Og er Gústi var búinn að því, þá opnaðist klett- urinn, eins og hurð væri þar fyrir, og þeir gengu báðir inn. Nú varð Gústi bæði stein- liissa og glaður, því að hann sá þar standa fjöldan allan af kistum hverja hjá annari, og allar voru þær fullar af glóandi silfur- peningum. „Þessa peninga alla á hann pabbi þinn“, sagði litli maðurinn, „því að allt sem stend- ur á lians lóð, er eign hans. En liann verður að hraða sér að ná í fjársjóð þennan, áður en það er um seinan“. Að svo mæltu hvarf maðurinn. Þegar Gústi vaknaði morguninn eftir, þá mimdi hann drauminn og sagði hann óðara bæði pabba sínum og mömmu. „Pabbi, þú ættir að reyna að slá þrjú högg á klettinn“, sagði hann. „Setjum nii svo, að þar stæðu inni nokkrar kistur fullar af silf- urpeningum“. „Ó, hvernig getur þú trúað öðru eins op þessu, drengurinn minn?“ sagði faðir hans. „Þetta er ekkert nema draumur, og ekki er mark að draumum“. „Ekki kostar það neitt að reyna það“, sagði mamma Gústa. „Jæja, einhverntíma í annað skipti“, sagði pabbi hans og fór til vinnu sinnar. En Gústi tók þá hamarinn sinn og laum- aðist upp að klettinum. Hann titraði allur af eftirvæntingu þess, sem verða kynni, þegar hann sló höggin þrjú á klettinn. Mikil urðu vonhrigði hans og sorg, þegar kletturinn laukst ekki upp; liann grét beisk- lega og sagði foreldrum sínum ekki frá neinu. En um nóttina dreymdi hann aftur að litli grái maðurinn kæmi að rúminu sínu. En í þetta skipti bað hann Gústa ekki að koma með sér, heldur leit á hann alvarlega og kvað vísu þessa: Þú ert svo dáðlítill, drengur minn, liann dugir betur, hann pabbi þinn, og lengi má ekki aðgerða bíða, því aðrir taka þá sjóðinn hans fríða. Þegar Gústi sagði pahha sínum og mömmu þennan draum um morguninn, þá litu þau steinhissa hvort á annað. „Mér finnst þú ættir að reyna“, sagði mamma. „Já, það get ég gjarnan gert, þó að ég hafi ekki hina minnstu trú á draumunum. Komdu þá með mér, drengurinn minn, við skuliun fara!“ Gústi stökk af stað með föður sínum, al- veg í sjöimda himni af fögnuði; en þegar þeir komu nærri klettinum, fór hjartað að herjast í brjósti honum svo að hann var milli vonar og ótta. Faðir hans sveiflaði stóra hamrinum sín- um og lét hann skella af öllu afli á klettin- um, en hann var eins og lóðréttur veggur. Hann barði þrjú högg, en engin burð opn- aðist; en fáeinir steinmolar losnuðu og duttu ofan á flötina undir klettinum. Tárin fóru aftur að koma fram í augun á Gústa litla, og pabbi hans varð líka fyrir vonbrigðum, þó lítil væru. „Þarna sérðu nú, drengur minn“, sagði liann, „draumurinn er markleysa. Það er enginn sjóður í klettinum“. En í sömu andránni tóku augu hans að ljóma af fögnuði og hann fór að skoða klett- inn nákvæmlega. Hann sló nú enn nokkur högg í klettinn; að því búnu tók hann í hönd Gústa htla og þrýsti fast: „Gústaf, drengurinn minn!“ hrópaði hann upp. „Það er nú samt sem áður sjóður í klettinum. Hann er hvorki meira né minna en fullur af silfri“. „Já, en hurðin hefir ekki lokist upp- Hvernig geturðu þá vitað, að silfurkisturnar standi þarna inni?“ „Það eru ekki neinar silfurkistur þar“, sagði pabbi hans, „en rétt í þessu fann ég 160 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.