Heimir - 24.12.1904, Síða 7
H E I M I R
119
ljósiö og fór upp í rúmiö, og þaöan blönduöust hrotur hennar
saman við svefnlæti hinna. Allt í einu vaknaöi Kosciuzko og leit
í kringum sig. „Jens," hrópaöi hann, „hvar er Síza?"— Glott-
Jens vaknaði, leit líka í kringum sig. „Já, þar sagðir þú svei
mér satt orð, því hvar í þremlinum er Síza? Jú, hún liggur þá
þarna í rúminu, gamli kassinn. En það er ekki til neins, að
tala við þig, Kosvizk, því þú ert sljór, og getur ekkert heyrt."-
• Hann benti á rúmið og sagði: „Það er synd að vekja hana." —
Hann gaf gamla félaga sínum bendingu um, að þeir skyldi fara.
Glott-Jens slökkti ljósið, og svo læddust gestirnir gætilega út í
regn og rok vetrarnæturinnar.
„Það var dæmalaust skemmtilegt kvöld, Jens", sagöi Kos-
ciuzko.—„Já, það er langt síöan að eg hefi lifað eins ánægjulega
jólanótt," sagði Jens. „En það er ekki til neins að tala við þig,
því.. .. já, já, góða nótt og gleðilega hátíð, Kosvizk."—
Gömlu félagarnir fóru sinn í hvora áttina út í myrkrið, —
múrarinn til kauptúnsins, vikakarlinn í áttina til þorpsins.
Lausleg þýðing eftir Viðar.
Vilrúnar
KVEÐIÐ UNDIR HJÓNAVÍGSLURÆÐU RRESTS
Hvað eru heillaóskir?
Hvað fagurmæli?—-
Orð til einkis töluð,
ef ei hugur
og hjarta fylgir
máli þess, er mælif.
Betri eru brigöir