Heimir - 24.12.1904, Page 12

Heimir - 24.12.1904, Page 12
Í24 H EI M I R inn frá Eisleben yfir heiininn, og félngsbróöir hans útlagöi þaö fyrir mönnum; ritningarnar voni þýddar á ný. Ný tunguinál risu og boöuðn hina nýjn trú, nýjar bókmenntir, nýtt tímabil, og lærisveinarnir fóru enn út um allan heirn og skírðu „í nafni föðursins, sonarins og anda heilags"—en „trúin" hét Lútherska. Menn trúðu. En reynslan safnaði til nýs tímabils. Heim- urinn var ekki nema hálfur enn, en hinn helmingurinn fannst. Menn yfirgáfu sína fornu guðastaði og ðuttu í fjarlægan heim. Nýjar þjóðir mynduðust með alla þá auðlegð reynslu og þekk- ingar, er móðurþjóðirnar höfðu eignast. Hér var trú ekki ein- hlít, von ekki nægilég. En öll þau skilyrði, er nýr heimur get- ur veitt, að öllum gæti vegnað vel, voru fyrir hendi. Það dróg til sundrungar milli þess nýja og þess ganda. Það vantaði að eins eitt, og það var kærleikurinn. En þetta rýja tímabil kallaði fram úr djúpi mannfélagsins mann, er talsmaður yrði þess nýja guðspjalls, nýlendusoninn William Ellery Channing. Hann kallaði kærleika yfir heiminn, og sá sem nú útskýröi það, þýddi ritningarnar nýju — náttúruna og lífið—var Charles Darvvin. Heimurinn er einn, uppruni alls lífs, allrar tilverunnar er einn, og eini einingarsáttmálinn er kærleikurinn. Um þessi þrjú hlaupár framþróunarinnar —von, trú, kær- leik— er það sem siðmenningarkenningum vorum hefir skilað á- fram. Og merkisberar einkunnarorðanna voru Kristur, Lúther og Channing. En á undan Kristi var Sókrates, á undan Lúthcr Huss og á undan Channing Kant með kenningu sína um „vilj- ann til hins góða." An fyrirrennaranna og þeirra, sem á eftir komu —merkisberanna sjálfra,— hefði öldin orðið'önnur. Og lærisveinar þessarar nýju kenningar eru þegar komnir út um allan heim, og kenna öllum þjóðum og skíra þær „í nafni föðursins, sonanna og anda heilags."—föðursins: þess lífs og frjófgunarkrafts, er í alheiminum býr,— sonanna: þess starfandi mannlega lífs og-anda heilags: þess sanna, fagra og góða, ein- ingar og friðar anda, er allt blessar. Að fráskildu lífsstarfi Channings, er gekk í þágu frjálsra skoðana, er lítið hægt um hann að segja. Hann var talsmaður hinna nýju hugsjóna, og seinni tíminn hefir merkt hann sem

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.