Heimir - 24.12.1904, Page 13

Heimir - 24.12.1904, Page 13
H E I M I R 125 manninn, er fyrstur varö til þess, að gjöra þær að „lífi og sann- leika." Þegar hann innritaðist viö Harvard háskólann árið 1794, voru menn farnir að átta sig, hugsa upp aftur það er þeir höfðu sagt og gjört, því stríðið var nú afstaðið. Meðan á því stóð, hafði verið gengið all langt út frá hinum vanalegu kenningum kyrkjunnar. Það var prédikað á móti harðstjórn og einræði og það sem meira var, kenningum Kalvins um gjörspilling mann- eðlisins. Þetta leiddi af sér mikilvægar breytingar í trúarlær- dóminum. Ef eðli mannsins var ekki gjörspillt, ef hann var fær um að stjórna sér sjálfur í veraldlegum málum, því þá ekki í andlegum? Ef réttlæti var til sem eilífur sannleikur í hinum ytri lífskjörum manna, hlaut það þá ekki einnig að vera til í hinum andlega heimi? Ef það var bindandi meðal manna, náði það þá ekki einnig til guðs og manna? En hversu átti þá hegn- ingin eftir dauðann að skoðast? Var hún til orðin líkt hinuin svívirðilegum kenningum um guðlegt einkaleyfi konungsins, á dögum þekkingarleysis og þrælsótta? Eða var nokkurt réttlæti í henni falið? Fyrir stundar brot eilíf fordæming, saklausir líða fyrir seka. Enn fremur— að hve miklu leyti var ritningin óskeikull leiðarvísir manna? Varði ekki ritningin konungsstjórnina, helg- aði hún ekki þrælaverslunina, leyfði hún ekki líflát, voru ekki hin grimmu hegningarlög sakamanna út úr henni dregin—f einu orði sagt allt það, er frelsisstríðiö og mannvinir þeirra tíma börðust á móti? Þetta voru spursmálin, er lágu þá fyrir, og lögðu ýmsir til þeirra mála. John Adams, sá er varð forseti hins nýja lýöveld- is þá um það leyti, hallaðist að hinum nýju kenningum ásamt Thomasi Pains og ótal fleirum. En afskifti þeirra voru fremur í þá átt, að til sundrungar drægi meðal flokkanna, er stóðu hver öðrum andvígir í þessum málum. í ríkismálunum voru nýlendumenn önnum kafnir aö koma þeim í horf. En til þess þjóðin fengi fastari rætur, svo lands- lögin yrði ekki ónýtt, þurfti og að koma hinum andlegu málum þjóðarinnar í fastara horf. Og til þess lagði Channing fram I K

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.