Heimir - 24.12.1904, Síða 14

Heimir - 24.12.1904, Síða 14
sína krafta. Arið 1798 afréð hann að leggja fyrir sig guðfræðis- nám, og útskrifaðist hann vorið 1801 úr prestaskólanum. Það fyrsta, sem þá lág fyrir, var að reyna að jafna sakir milli hinna tveggja andvígu flokka, svo þeir segðu sig ekki úr lögum hvorir við aðra. Boston kyrkjurnar og yfir höfuð fiestar Ný-Engl. kyrkjurnar höfðu færst yfir á hina nýrri skoðun, meðan á styrjöldinni stóð, en nú var vöknuð hreyfing með það, að kippa öllu í hið forna horf aftur. Þegar farið var að rannsaka ágreining þann, sem inn var kominn, reyndist aðallega vera um eitt atriði að ræða— þrenningarkenninguna og, það sem henni fylgdi, friðþægingu fyrir krossdauða Jesú. Boston kyrkjurnar voru búnar að sleppa þeirri kenningu, og hið sama höfðu ótal fleiri kyrkjur gjört á Englandi. Þá lét og Harvard háskólinn til sín heyra, og fylgdi hann Unitörum að málum, en svo voru þeir nefndir, er öndverðir stóðu þrenning- ar átrúnaðinum. Eftir margítrekaðar tilraunir, er til einskis komu, að fá komið á samvinnu milli beggja málsparta og tilslökun af hálfu þeirra, er báru velferð lands og þjóðar meir fyrir brjósti en met- orð einstakra ofstækismanna, gjörðu þrenningarkyrkjurnar sam- tök sín á meðal að hrinda þeirn öllum úr söfnuðunum, er ekki fengist til að játa öll hin fornu játningarrit, og flýtti það fyrir, að við guðfræðisdeild Harvardháskólans hafði verið settur kenn- ari, er var unitariskra skoðana— Dr. Henry Wore. Þetta var árið 1805. En þctta sæti höfðu þrenningarmenn ætlað sér og þar með, að ná skólanum á sitt vald. Af þessu leiddi. að kyrkjurnar fram og aftur um Bandaríkin féllu í ótal mola. Nú byrjaði fyrir alvöru starf Channings. Hann vann með lipurð og gætni og útskýrði grundvallaratriði þau, er hin nýja guðfræði yrði að byggja á. Sameiginlegur skyldleiki allra manna og siðalögmál, er þessu væri samboðið. Smátt og smátt fór kenningin að snúast um þessi atriði í báðum hinum andstæðu kyrkjum. Og hver eftir sínu upplagi tók sér fyrir að breyta eftir boði meistarans „það sem þér viljið að mennirnir gjöri yður.það skuluð þér og þeim gjöra"—Unitarar með því að breiða út af al-

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.