Heimir - 24.12.1904, Page 18

Heimir - 24.12.1904, Page 18
130 H E I M I E lians af öörum toga spunninn. Hermánnshendin haföi ekki ætíö haft tíma til aö signa sig, áður eh tii orustunnar var gengiö. Hann var mikill bókamaður, las allt, sem hann kom löguni yfir, einkum trúmálarit þeirra tíma. Hann var einkar frjálslynd- ur í skoðunum og mjög andstæður ýmsum kennihgurn, er þóttu sanngjarnar þá, eins og útskúfunarkenningunni, þrenningarlær- dómnum og því, að kraftaverkasögur N. Testam. sönnuðu nokk- uð til eða frá um sannleika kristindómsins. En einmitt um það atriði var þá hvað mest deilt meðal lærðra manna. En þrátt fyrir þessar trúarskoðanir sínar hafði eldri Parker almenningsorð á sér fyrir hreinlyndi, ærlegheit og orðheldni, og vitsinunamaður þótti hann mikiil. Þó má af öllu merkja, að Theodore hefir þótt vænna um móður sína. Enda var hún þvð- ari í lund og viðkvæmari fyrir öllu, er hann snerti, en faðir hans. Sex ára byrjaði Parker að ganga í alþýðuskólann, en þegar hann var níu ára, gat hann að eins sinnt skóla að vetrinum til, því á sumrin varö hann aö hjálpa til við vinnubrögðin heima.— Árið 1820 lauk hann við barnaskólann og byrjaði á latínu og grísku námi undir tilsögn Hr. Wm. White, er þá var stúdent við Harvard, en varð síðar prestur við Unitarakyrkju skammt frá Boston. 1826 var hann búinn að ljúka sér af við alþýðuskólana, og byrjaði þá sjálfur að kenna á barnaskólum þar í grenndinni. I þann tíma, eins og svo ótal sinnum síðan, var það eina úrræðiö og einu mögulegleikarnir að hafa saman nokkra dali fyrir fram- haldandi skólakostnaði, fyrir þá er litinn eða engan styrk gátu fengið að heiman. Kaupið var mjög lágt, að eins $25 um mán- uðinn, og af því varð hann að borga $iotil vinnumanns, er hann varö að leggja til í sinn stað heima. Á afganginum varð hann að fæða sig og klæða, en þó dróg hann svo til muna, aö hann gat keypt sér þær bækur, er hann þarfnaðist. Seint um sumarið 1830 fór hann einn morgunn fótgangandi inn til Cambridge á laun viö íööur sinn, gekk undir inntökupróf við háskólann og náði heim aftur næsta kvöld. Er heim kom, var heimilisfólk allt gengið til sængur. Hann sagði föður sínum tíðindin, og lét karl vel yfir, en sagði honurn þó, að ekkert gæti hann hjálpað honum, og yrði hann þar fyrir sjálfur að sjá, hver

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.