Heimir - 24.12.1904, Side 26

Heimir - 24.12.1904, Side 26
138 H E I M I R ráöa, og leggja rækt við þa5. Því gjörspillingu mannlegs eölis —aö ekkert gott sé til hjá nokkrum manni—- sé vísindin fyrir löngu búin að hrekja og reka til baka í skaut móöur sinnar,— orþódoxu kyrkjnnnar. Dr. Eliot hefir jafnan verið öruggur talsmaður unitariskra skoðana og látíð sér mjög annt um velgengni þeirrar hreyfingar. Hann hefir sjálfur haldið ótal ræður um þau mál og jafnan ver- ið boðinn og búinn að bera ábyrgðina. Undir stjórn hans hefir háskólinn blómgast ár frá ári. A síðastliðnum fimm árum hafa mörg ný kennaraembætti verið skipuð og byggingar reistar, er alls nemur yfir 5 milljónir doll.— Það var og meðfram fyrir hans forsjá, að Vilhjálmur Þýzkalands keisari gaf þangað safn af þýzkum listaverkum og leirstey]>um, svo að listasafnið þar er með þeim auðugri í landinu. Dr. Eliot hefir verið ásakaður um það, að hann drægi tauin auðvaldsins á móti verkalýðnum, en sú ákæra á við ekkert að styðjást. Hann hefir látið í Ijósi ótrú sína á ýmsum verkamanna félögum, er með ýmsum samþykktum sínum eru búin að taka svo algjörlega ráðin af einstaklingnum, að hann er orðinn í engu meira sjálfs sín ráðandi en vinnudýrið, sem beitt er fyrir plóg- inn. Það er sitt hvað, að halla á verkamanninn eða reyna að aftra því, að illa sé farið með hann af skrílshöfðingjum; en það er það verk, er hann hefir reynt að vinna. Máli verkamannsins og fátæklingsins hefir hann oft talað, og sagst vel. Dr. Samuel Atkins Eliot. Dr. Samuel Atkins Eliot er fæddur í Cambridge Mass. 24. ágúst 1862. Hann er sonur Charles W. Eliot forseta Harvard háskólans.— Hann útskrifaðist frá Harvard vorið 1884 úr vís- inda og tungumála deildinni og innritaðist þá við guðfræðisskól- ann. Faðir hans, er jafnan hefir sýnt vakandi áhuga fyrir upp-

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.