Heimir - 24.12.1904, Síða 28
140
II E I M I R
útnefndur vcrkamálaráðherra í ráðaneyti Bandaríkjaforsetans —
stöðu, er hann gegnir enn— og svo hitt, að hann kvaðst ekki
hafa þá sérstöku þekkingu, er nauðsynleg væri forseta félagsins.
A þingi þessu var því Dr. Eliot kjörinn forseti, en séra Charles
W. St. J-ohn, prestur frá Pittsburg Penna., settur skrifari í hans
stað.
Samkvæmt breytingunni, er þá var gjörð, var hinum nýja
forseta faliö allt framkvæmdarvald á hendur fyrir félagið, og
settur meölimur allra milliþinganefnda, er kosnar eru. Forset-
inn á og að sjá um öll missiórismál, og vinna þar áð eins mikið,
og tími leyfir. Hann er í einu orði biskup félagsins, ef hægt
væri að brúka það orð um nokkurn mann innan Unitarakyrkj-
unnar.
Verksvið hans er afarstórt og óteljandi skyldur, er á honum
hvíla. Unitarakyrkjan hefir nú breiðst yfir landiö og undir hans
stjórn hafa bæzt við um ioo nýjar kyrkjur og söfnuöir. Inn-
tektir félagsins eru nú nær tvöfaldaðar við það, sem þær voru
áður, og skólum hefir félagið fjölgað að mun. Þriðji prestaskól-
inn var stofnsettur, árið sem leið, vestur á Kyrrahafsströnd. I
ráði er og, að setja þann fjórða af stað í satnbandi við Chicago
háskólann.
Dr. Eliot er enn þá ungur maður og heill heilsu. Efalaust
á hann eftir að gjöra stórmikið. Hann er mjög mannvænlegur
inaður að ásýndum, hár og þrekinn, djarfmannlegur í framkotnu
og þannig í viðmóti, aö hann er manna líklegastur til, að reka
hræsni og hleypidótna í felur. Hann er stór í lund, glaðlegur en
yfirlætislaus, hagsýnn vel og kjörinn leiötogi síns félagsskapar.
HRIJVIIR er geíinn nt af nokkrum íslendingum í Ameríku; komur út 18 sicnum á ári og
kostar $ 1 árgangurinn. — í útgáfunefnd eru þessir menn: B. B. Olson, Öimli, Björn
Pótursson, Frcd. Svvanson, Guömundur Arnason, og Magnús Pótursson, Winnipeg.----------
Ritstjóri síra Rögnvaldur Pétursson, Winnipeg.
Utanáskrift til ritstjórnar blaösins 6r: Hcimir, 785 Notre Damc Ave. Winrfpeg Man.
Útsendingu oginnheimtu Hoimis annast Björn Pótursson, 555 Sargent Ave., og eiu all-
ir útsölumenn og kaupendur ritsins beönir aö snúa sór til hans því viövíkjandi.
Proutari: Gísli Jónsson, 656 Young st. Winnipeg Man.