Heimir - 01.03.1906, Blaðsíða 14

Heimir - 01.03.1906, Blaðsíða 14
I Z9 H E I M I R Úr trúarsögu Forn-íslendinga. EKTl lí HELGA PÉ J'URSSON. (Úr Skírní) ---»—- Nulla res efflcacíus multítudinenr rejíit quam superst-ítio. CURTIUS. Ólafur Tryggvason krístnaði Noreg, og af hans völdum komst kristni á hér á landi, eins og kunnugt er. Þaö viröist í fljótu bragöi næsta undarlegt, aö þessi tíg erhjartaöi víkingur 'skyldi hafa svo brennandi áhuga á því aö boöa „trúarbrögö kærleikans",—og illmenniö Þangbrand- ur, einn aðalkristniboöinn á Islandi, var þeim, erhannsendi, fyllilega samboöinn. En undrunin hverfur, er vér gætum b'etur aö; Olafur konungur braut Noreg til kristni og svalaöi þannig sinni ríku drottinslund; valdafrekjan, aö brjóta lands- fólkiö til hlýöni viö sig, eigi einungis sem konung, heldur eínnig sem trúboða, hefir aö líkindum veriö Ólafi Tryggva- syni aöalhvötin til trúboösins. Sjálf var kristnin, sem svo harölega var haldiö aö inönnum, um fram alt „nýr siöur"; mannúöarhugmyndamina gætti fremur lítiö, og hlutu þær ásamt afneitun holdsins og hinni austrænu aögeröalausu þol- inmæöi í þrautum, aö vera mjög fjarri skapi þessu grimma og glæsilega rándýri. Varla voru kristilegri ástæöurnar til kristnitökunnar en kristniboðsins. Það þarf ekki aö taka þetta fram um þá, er voru píndir til kristni, og mætti þó ef til vill fremur segja þaö um þá, en ýmsa af hinum, sein kristnir uröu af frjáls- um vilja. Hvergi kemur fram sú 'skoöun, aö sá, sem kastar heiöni og gjörist kristinn, kjósi sannleik, en hafni falstrú; aldrei er látiö í ljósi, aö Þórr og Óöinn eigi sér enga veru nema í hugum manna. Þegar víkingarnir taka kristni, þá er þaö af því að þeir ætla, aö himnakonungurinn sé voldugri en guöir forfeöra þeirra; þeir taka hinn nýja siö af því aö

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.