Heimir - 01.05.1914, Page 8

Heimir - 01.05.1914, Page 8
260 HEIMIR. nóttunni cn á daginn; það er öðru vísi í dag en það var í gær, og öðru vísi á þessum staðnum cn þar er á liinum. Andrúmsloft vort er loftið sjálft að viðbættu öllu hví sem hað hefir dregið í sig af jörðinni. Andrúmsloftið dregur alt í sig: það dregur í sig efnin, sem gufa upp af sjónum og fúaloftið úr mýrarflóunum. Stundum er aðeins iítill hluti andrúmsloftsins lireint loft; ýms loftkend cfni og reykur koma í stað Jress og útrýma því. 2?ví er alveg eins farið með trúna og guðfræðina og sambandið þeirra á milli. Það cr oft talaö um trú þegar átt er við guðfræði, alveg eins og oft er talaö um loft þegar átt er við andrúmsloftið með þeim efnum,. sem í því eru. En trúin er alstaðar hin sama og hefir ávalt frá byrjun verið liin sama. Hún getur verið að mcira eða minni leyti hrein, en muriurinn er aðeins að live miklu leyti liún er hrein. lmð er aðeins ein trú til. Aftur á móti breytist gu'ðfræðin stöðugt. Hún er öðru vísi á einum staðnum en öðrum, öðru vísi á einum tíma en öðrum. 3?að sem orsakar mismuninn á milli gu'ðfræði og trúar, er ná- kvæmlega það sama og það sem orsakar mismun andrúmloftsins og hins hreina lofts. Guðfræðin er full af efnum, sem líkja má við loft- kendu efnin, er leita upp frá jörðinni. Hún dregur í sig villur, for- dóma og ófuilkomlegleika vors iægra lífs; hún eitrast af mannlegum ástríðum; hún tekur í sig fúaloft gamalla erfikenninga, sem eru eins og óhrein og fúl fen, sem eftir verða, þegar vatnið, er í fyrstu orsakaði þau, þornar upp. Ef maður sundurliðar guðfræði eirihverrar aldar eða einhvers samfélags, þá finnur maður að erfikenningarnar og fordómarnir, sem þar eiga sér stað eru blandaðir saman við meiri eða minni trú. En ef maður sundurliðar trúna, þá er hún ávalt eins. Guðfræðin er stundum heilnæm, eins og andrúmsloftið, en stundum er hún banvæn. Trúin flytur ekkert nema líf, eins og hreina loftið. Trúin er náttúrlegt og einfalt traust sálarinnar á góðan kraft yfir sér og umhverfis sig og skyldleik sinn við hann; og guðfræðin er liugmyndirnar, skoðanirnar, tilgáturnar og erfi- kenningarnar, sem hafa safnast utan um þetta; stundum gjöra þær það ljóst og skýrt, stundum óljóst og þokukent. Þegar eg segi, að til sé aðeins ein trú, á eg við, að liin instu sannindi trúarinnar séu aöeins ein, og þessi sannindi koma í ljós

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.