Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 4

Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 4
Kirkjuritið. BISKUPSVlGSLA AÐ HÓLUM. Sunnudaginn 29. ágúst, að loknum aðalfundi Presta- lélagsins, var séra Friðrik J. Rafnar vígður til vígslu- biskups fyrir Hólabiskupsdæmi í dómkirkjunni að Hól- um. Nóttina fyrir hafði fjöldi aðkomumanna gist að Hól- um, og um morguninn snemma tók kirkjufólk að safn- ast að. Var gizkað á, að um hádegi væri alls á staðnum um 800 manns. Veður var hið bezta, fegurð og tign Hóla og Hjaltadals nutu sín vel í glaða sólskini. Stundu eftir hádegi var gengið í skrúðgöngu úr skóla- húsinu í kirkjuna. Fremstir fóru tveir hinna yngri presta svo sem biskupsþjónar, þá biskup landsins og vígsluþegi, báðir í fullum biskupsskrúða, því næst tveir prestar, er þjóna skyldu fyrir altari, séra Ólafur Magnússon og séra Friðrik A. Friðriksson í fullum prestsskrúða, þá fjórir vígsluvottar, séra Björn Stefánsson, séra Guðbrandur Björnsson, séra Stefán Kristinsson og séra Óskar Þor- láksson, síðan gengu aðrir prestar hempuklæddir, tveir og tveir saman. AIls voru í þessum flokki um 30 kenní- menn. Á meðan var samhringt dómkirkjuklukkunum, voldugum og hljómfögrum. Guðsþjónustan hófst með því, að séra Sigurður Stef- ánsson flutti bæn í kórdyrum. Þá tók við sálmasöngur. Söng flokkur karla og kvenna frá Hofsósi, en Páll Er- lendsson bóndi á Þrastarhóli stýrði söngnum. Þá er tveir sálmar höfðu verið sungnir og tónuð vígslukollekta, steig séra Óskar Þorláksson í stólinn og lýsti vígslu. Hafði hann fyrir texta orðin í Fil. 2, 5: „Verið með sama hugarfari

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.