Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 5

Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 5
Kirkjuritið. Biskupsvígsla á Hólum. 299 sem Kristur Jesús var“. Á eftir ræðu sinni las hann upp æfiágrip vígsluþega. Því næst fór fram sjálf vígsluathöfnin samkvæmt helgi- siðabókinni. Biskup landsins flutti vígsluræðu sína út af orðunum í Gal. 2, 20: „Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér“. Síðan lásu vígsluvottarnir sinn ritn- ingarkaflann hver, en á milli söng söngflokkurinn sálm- inn: „Andinn Guðs Iifanda af himnanna hæð“. Yígsluþegi vann heit sitt og kraup við altarið, en biskup landsins og vígsluvottarnir lögðu hendur yfir hann. Næsti sálmur var: „Víst ert þú, Jesú, kongur klár“. En á eftir honum prédikaði biskupinn nývígði. Hann lagði út af guðspjalli dagsins, Lúk. 17, 11—19, sögunni um 10 lík- þráa. Benti hann á það, hve ástandið í heiminum á vor- um dögum endurspeglaðist í framkomu hinna níu, sem sneru ekki aftur, er Jesús hafði læknað þá, til þess að get'a Guði dýrðina; það gerði aðeins einn. En í því hugarfari einstaklingsins að ganga Kristi þannig á hönd af alhug, byggi gróðurmagn mustarðskornsins, sem myndi gjöra ís- lenzku þjóðina að Guðs þjóð og um síðir breyta heimin- um í Guðs ríki. í lok ræðu sinnar flutti hann þakkir söfn- uðum sínum og samverkamönnum. Eftir prédikunina voru biskuparnir og prestarnir til alt- aris, og lauk þessari hátíðlegu og fögru guðsþjónustu með því, að sunginn var sálmurinn „Faðir andanna“ og bænar beðið í kórdyrum. Kirkjuritið samfagnar vígslubiskupnum nýja yfir virð- ingu þeirri og trausti, sem honum hafa verið sýnd að verðleikum, og óskar Norðlendingum allra heilla og bless- unar af starfi hans.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.