Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 22

Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 22
316 Friðrik FricSriksson: KirkjuritiíS. nei við því, þar sem skólinn hefði 16 kennendur, en að- eins 12 börn, er sæktu skólann, en hann sagði: Ef þú vilt ná í hörn og mynda þinn eiginn flokk, máttu það gjarna, því að nóg er húsrúmið, því miður“. Næsta sunnudag kom Moodv i fararbroddi fyrir 18 drengjum, sem hann hafði smalað saman á götunni. Samt stofn- aði hann ekki sérslakan flokk handa sjálfum sér, lield- ur skifti hann þeim niður á kennarana. Hann þóttist ekki vera nógu fær til að kenna, en fann hlutverk sitt og fullnægju i þessari smalamensku fvrir aðra. Hann hélt áfram að smala og á skömmum tíma fylti hann liúsið og varð úr þessu blómlegur sunnudagaskóli. — Þegar hans þurfti ekki lengur með þarna, þá réðst hann i að slofna sunnudagaskóla í öðrum hæjarhluta, leigði sér stórt liúsrúm, fékk kennara og hóf smalamensku sína þar, og hrátt var húsrúmið of lítið, svo að hann varð að leigja stærri byggingu. Hann var lífið og sálin í þessum skóla sínum, enda þótt hann hvorki kendi eða talaði. Hann stjórnaði samt öllu. Þá er skólinn var úti, stóð hann við dyrnar og tók í hendina á hverju barni og skaut að þeim góðum orðum. Þau þyrptust í kring- um bann. Það var eins og hefði hann eitthverl segul- magn lil að liæna þau að sér. Það var segulmagn kær- leikans til Krists og barnanna og hins brennandi áhuga. — Siðdegis gekk hann um og lieimsótti heimili barn- anna og bauð foreldrum þeirra á samkomu um kvöldið í skólahúsinu. Þeim samkomum stjórnaði liann sjálfur, en fékk aðra til að tala. Hann var allan daginn að starfi qg gaf sér ekki tíma til að borða; hafði aðeins nokkurar kexkökur i vasanum og svolítið af osti. Þannig vann hann ldífðarlaust hvern sunnudag. Hina aðra 6 daga vilc- unnar var hann vörubjóður fyrir verzlun sína og stund- aði það starf með svo miklum áliuga og árangri, að hann hvað eftir annað fékk launaviðbót og hafði miklar tekjur, sem hann varði til andlegs starfs og gat þó lagt nokkuð til hliðar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.