Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 13
Kirkjuritið.
VITA.
ÆFIÁGRIP FRIÐRIKS J. RAFNAR.
LESIÐ UPP, ER HANN, 29. ÁGÚST 1937, VAR VÍGÐUR
VÍGSLUBISKUP I HÓLASTIFTI HINU FORNA.
Ég, Friðrik J. Rafnar, er fæddur að Hrafnagili i Eyja-
firði 14. dag febrúarmánaðar 1891. Foreldrar mínir vor.u
lijónin Jónas prófastur og síðar kennari Jónasson og
Þórunn Stefánsdóttir. Var faðir minn fæddur að Úlfá
í Eyjafirði 7. ágúst 185(5 og var sonur hjónanna Jónasar
Jónssonar, síðar bónda og læknis á Tunguhálsi, og Guð-
riðar Jónasdóttur bónda á Halldórsstöðum í Eyjafirði.
Faðir minn andaðist í Reykjavík 5. ágúst 1918. Móðir
min var fædd að Hlöðutúni í Borgarfirði 24. febr. 1858
og var dóttir Stefáns bónda Péturssonar Ottesens, sýslu-
manns á Geitaskarði, og Önnu Guðmuudsdóttur. Hún
andaðist í Reykjavík 1(5. marz 1933.
Af 8 börnum foreldra minna komumst við 1 bræður
til fullorðinsára. Urðu hin 4 systkini mín, og 3 fóstur-
syslkini þegar á unga aldri herfang hins hvíta dauða.
Má telja, að öll þau ár er ég dvakli i foreldrahúsum,
fram að fermingu, væri altaf eitthvert systkina minna
eða fóstursystkina sjúkt eða rúmliggjandi. Er það mörg-
um minnisstætt, sem æskuheimili mínu voru kunnugir,
livílikt þrek foreldrar mínir sýndu í þeirri áralöngu og
örðugu heimilisbaráttu. Nú erum við aðeins 3 bræður
á lífi. Hinn elzti okkar andaðist í Kaupmannahöfn 3.
júlí s.l.
Upphaflega var svo til ætlast af foreldrum mínum, að
ég gengi skólaveginn, og var námi minu í heimahúsum
hagað með tilliti til þess. Settist ég í 1. bekk Gagnfræða-