Kirkjuritið - 01.07.1957, Síða 26
312
KIRKJUBITIÐ
einsætt að taka. Er það lífsnauðsyn á þessum geigvænlegu tím-
um, að kirkjur þjóðanna sýni liver annarri traust og kærleika
og leitist þannig við að efla frið í milli. Ræddi ég nokkuð um
þessi mál við höfuðbiskupinn í Moskvu, og höfum við skipzt
á bréfum síðan. Kvað höfuðbiskupinn ferðir kirkjuleiðtoga
Bandaríkjanna til Rússlands og rússnesku kirkjunnar til Randa-
ríkjanna hafa treyst góð kynni, skilning og samúð yfir hafið.
Enn hefir Orþodoxa kirkjan rússneska ekki gengið inn í Al-
kirkjuráðið, en ýmsir gjöra sér vonir um það, að svo megi fara
og verði við það nær um frið í heiminum. Virtust mér ýmsir
menn rússnesku kirkjunnar hafa hug á slíkum samtökum.
Kirkjulegir fundir.
Á synodusárinu hafa verið haldnir tveir aðalfundir Presta-
félags íslands, hinn fyrri í Reykjavík eftir síðustu prestastefnu
29. júní og hinn síðari á Þingvöllum í gær. Birtast skýrslur
þeirra í Kirkjuritinu.
Stjórn Prestafélagsins skipa nú: Séra Jakob Jónsson, formaður,
séra Jón Þorvarðsson, séra Sigurbjörn Einarsson prófessor, séra
Sveinbjöm Högnason prófastur og séra Sigurjón Guðjónsson
prófastur.
Félag íslenzkra prestskvenna var stofnað á heimili biskups
27. júní og kosin undirbúningsnefnd, er samdi frumvarp að
lögum fyrir það. Formaður var kosin frú Anna Bjarnadóttir í
Reykholti. Þær frú Gertrud Friðriksson á Húsavík sóttu í sept.
prestskvennafund að Nyborg Strand á Fjóni. Félagið hélt fund
að Þingvöllum í gær og samþykkti sér lög og kaus sér stjórn.
Hana skipa frúmar: Anna Bjarnadóttir, Áslaug Ásgústsdóttir.
Dagný Auðuns, Hanna Karlsdóttir, Jónína Björnsdóttir, María
Ágústsdóttir og Steinunn Magnúsdóttir.
Deildir Prestafélagsins hafa haldið sem áður ársfundi sína.
En merkasta mótið á synodusárinu var norræna prestamótið
í Reykjavík, sem haldið var 2.-6. ágúst. Var það tíunda norræna
prestamótið, en þau eru haldin 3. hvert ár. Meginþunginn af
undirbúningi þess livíldi á herðum stjórnar Prestafélags íslands,
og vann hún verk sitt af mikluin dugnaði og fyrirhyggju. Þátt-