Kirkjuritið - 01.07.1957, Qupperneq 30
316
KIRKJURITIÐ
í Bessastaðakirkju fór fram hátíð á Hvítasunnudag. Forseti
íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, afhenti gjafir þær, er kirkj-
unni hafa nýlega verið gefnar: Gluggamyndir úr steindu gleri,
altari með grátum og róðukoss forkunnar fagran. Ennfremur
altaristöflu að láni frá listasafni ríkisins. Biskup prédikaði og
þakkaði gjafirnar. Hefir forseti átt forgöngu að því, að kirkjan
hefir eignazt margar stórgjafir og fengið þessa miklu endurbót.
Til kirkjulegra hátíða má að vissu leyti telja liátíð tónskálcla-
félags íslands í lok aprílmánaðar. Einkum þótti mjög til koma
hljómleika þeirra, sem haldnir voru í Dómkirkjunni sunnudags-
kvöldið 28. apríl. Þar voru sungin fögur og yndisleg íslenzk
sálmalög, sem mun að líkindum mega telja sígild.
Samband við erlend kirkjufélög.
Kirkja íslands stendur í sambandi sem áður við Lúterska
heimssambandið, Alkirkjuráðið og Kirknasamband Norður-
landa. Hún sendi síðastliðið haust 6 smálestir af meðalalýsi til
flóttamanna á Sýrlandi og Gyðingalandi, og kostaði það 30.946,
22 kr. Seldi Hf. Lýsi á vægu verði. Sjóvátryggingafélag íslands
hf. gaf allan vátryggingarkostnað. Sendingin kom með beztu
skilum og var þegin með miklum þökkum. Kirkja íslands gaf
10.000,00 kr. til Ungverjalandssöfnunarinnar og ákvað, að verja
skyldi til lýsiskaupa. Þetta var of lítið, en ég hugsaði mér, að
taka skyldi betur á síðar, enda helzt þörfin jafn brýn með
ungversku þjóðinni. Þurfum vér að safna fé í sumar, svo að
vér getum sent í haust þær gjafir, er koma sér bezt. Vil ég nú
biðja presta að gjörast brjóst fyrir slíkri fjársöfnun.
Sökum sambandsins við erlend kirkjufélög höfum vér feng-
ið heimsóknir ágætra manna, og ýmsir íslenzkir prestar og guð-
fræðingar njóta ókeypis dvalar erlendis: Séra Björn Jónsson og
Matthías Frímannsson í Þýzkalandi, séra Sigurður Pálsson og
séra Rögnvaldur Jónsson í Bandaríkjunum. Hafa ýmsir í hyggju
að fara utan á næstunni, m. a. til kirkjuþings Lúterska heims-
sambandsins í Minneapolis, 15,—25. ágúst. Meðal þeirra erum
við séra Benjamín Kristjánsson og séra Friðrik A. Friðriksson.