Framtíðin - 01.01.1910, Blaðsíða 3

Framtíðin - 01.01.1910, Blaðsíða 3
F R A M T 1 Ð I N. tæki í þeirri von, að græða; en gróðinn verður stundum harðla lít- ill. Stundum alls enginn. Stund- um verður það manni til stór- skaða. En á árinu okkar getum við grætt, ef við kunnum að fara með það. En við stór-sköðumst, ef við förum illa með það. En til þess að við græðum, er okkur gefið það. Að vísu er ekki sá gróði mestur eða bestur, eins og bent hefur verið á, sem fólginn er í fé því, sem leggja má inn á banka. Sá gróði getur verið góðixr og eftirsóknar verður með öðru góðu. — En gróði sá er mestur, sem hjálpar okkur til þess að þroskast sem best og verða sem bestir menn. Og að því leyti get- ur árið orðið okkur öllum gróða- eign, og á að verða það, livort sem við verðum á því ríkir eða fátækir efnalega. Ef við eignumst sál okk- ar betur á árinu, þá græðum við; en ef við líðum tjón á lienni, þá töpum við — bíðum það tjón af, sem aldrei verður bætt upp af nein- um veraldlegum gróða, þótt við græddum allan heiminn. Og liann, drottinn Jesús, sem látið liefur letra nafnið sitt uppi yfir inngang- inum að árinu, og birtist okkur því í byrjun þess, vill einmitt ábyrgjast okkur árið sem gróðaeign. En þá þarf hann að fá að vera með okk- ur, ekki eingöngu þá, er við göng- um til kirkju eða heyrum eða les- um guðs orð, heldur bæði þá, og eins er við göngum frá kirkju eða heyrn guðs orðs og xit f lífið. Mín nýárs-ósk er þá: Blessað ár, gróða-ár, ár til fjár í Jesú nafni. -----O---:- Kiö Nýja bókin. Gaman er að fá nýja bók, fallega og vel bundna, ekki bara ofur lítið kver, heldur stóra bók með mörg- um—mörgum blöðum. Einlægt koma út nýjar og nýjar bækur, bæði stórar og smáar. Þeir, sem rita þær, eru kallaðir ritliöf- undar. 0g það er mesti sægur til af þeim í heiminum. Og rnargir af þeim eru miklir menn. Ekki býst jeg við að neitt okka'v verði rithöfundur samt, og að noJvkur bók komi út eftir okkur. -Þó er nú bágt að segja um það. Allir miklir menn hafa einu siniii verið börn, og enginn vissi þá, livað úr þeim mvndi vérða. En hvað um það, og livað uifi fíU- ar þessar bækur og rithöfun'díi; þá er ein bók, sem við öll, stór og smá, eigum að skrifa sjálf. Það ér ný- lega búið að gefa okkur bókina. Hún er einmitt að kom'a út. Og hún er allra nýjasta bókin, sem við eigum öll. Þess vegna kallá jeg hana nýju bókina. Þegar hún er komin öíl út, þá er liún 365 'Blaðsíð- ur, í stóru broti lianda þeiín, sem stórir eru, en í smáu broti lianda þeim, sem smáir eru. Eftir því sem hún kemur út, eigum við að SKi'ifa hana. Og þegar hún er öll komin út, þá erum við búin að skrifa 365 blaðsíður. Og þá erum við orðin höfundar að stórri-tbók. Er það þó ekki gaman! .u. i En á einu ríður — á því, að við skrifum vel hverja- blaðsíðu. ViÖ megum ekki láta koma bletti á hana. Ef blaðsíðurnar verða með blettum, þá ófríkkar bókin. Það er ekki gaman að blaða í bókum, sem líta svoleiðis út. Við verðum í öll-

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.