Framtíðin - 01.01.1910, Blaðsíða 16

Framtíðin - 01.01.1910, Blaðsíða 16
FRAMTÍÐIN. 176 Mikið úr litlu. Þó ekki væri nema ein kartafla til í lieiin- inum, þá væri hægt, er sagt, metS gó'öri ræktun, aö fá af henni á tíu árum tíu þús- und millíónir af kartöflum, og þannig hjálpa öllum heiminum um útsæöi. Minsta tré. Náttúrufræöingar segja, aö minsta tré i heiminum sé Grænlands-björkin. Jlún er tæpa þrjá þumlunga á hæö; en nær |)ó me'ö greinar sínar út yfir 2-— 3 fet. P GAMAN. Eins og pabbi. — Þaö var fariö meö lit- inn dreng einn i fyrsta sinni til hársker- ans. Þegar liann var sestur í stólinn, spuröi hárskcr'nn hann: “Ilvernig viltu láta klippa þig, litli maður?“— “leg vil hafa kringlóttan blett efst eins og pablii,” var svariö scm hann fékk. lllgjarnar ályktanir. Þaö þarf ekki mikiö vit til þess aö draga þær; oft ekkert nema illgirnina tóma. — Dæmi:— Mrs. Dausmælgi: Fólkið, sent nýkömið er í húsið við hliðina á þér, tilýtur aö vera býsna rikt. Það hefur pianó. Mrs. Illgirni: Svei! Þaö á það ekki. Það hefur leigt það. Mrs. L.: Hvernig veistu það? Mrs. I.: Af þvi, hvernig þau ólátast á því. Jeg hef séð tvent spila á því í einu. Hann kunni að meta sunnudags- skóla starfið James A. Grfield, forseti Bandaríkjanna, sem myrtur var árið 1881, var einn af ágætis-mönnum Ameríku. Þegar hann var oröinn forseti, kom fiöldi blaöamanna á fund hans, til þess að spyrja hann frétta um æfiferil hans og það einkanlega, sem hefði haft mest álirif á hann og hann þakkaði hclst gæfu þá, sem honum nat'ði hlotnast. Meöal annars sagöi hann þá þetta: “Trúarbrögð min gaf hún móðir min mér. Hún kendi mér aö trúa á kristin- dóminn og að breytá eftir honum i lífinu. Jeg varö sunnudagsskóla-kennari. Og jeg hef aldrei iröast eftir því. Vinir þeir, sem jeg eignaöist viö sunnudagsskóla-starfiö, hafa reynst mér trúir, og áhrif þau, sent jeg komst þá undir, og vöktu hjá mér nýtt líf, vara fram á þennan dag, og eins vald það, sem jeg náði þá yfir sjálfum mér. Jeg trúi á suíinudagsskóla-starfið og bless- un þá, sem það veitir.” Ungur málaflutningsmaSur haföi um heila klukkustund verið að verja ranga hliö á máli. Dómarinn gefur þá úrskurð, sem var honum nokkuð mcinlegur.— “Há- verðugi herra I”, kallaöi lögmaöurinn full- ur gremju. “Ef úrskurðurinn þessi er lög, þá brenni jeg allar lögbækurnar mín- ar.” — Betra væri aö lesa þær,” var hið gagnorða og fyndn-i svar, sem hann fékk hjá dómaranum. Júlía litla var löt aö gciga í skóla, og kvartaöi eitiu sinni yfir því viö mömmu sína, að sér liöi illa. Mamma hennar reyndi með ýnisum spurningum að komast cftir því, hvað að henni gengi. Það virt- ist ekkert ganga að henni i höfðinu eöa í lifinu. — “Kennir þú nokkursstaðar til?” spuröi mamma hennar. — “Nei, mamma!” var svarið. — “Hvar finnur þú þá mest til, góöa mín?” spurði hún. — “í skólan- um“, sagði Júlia. Jiart lögtnál. “Tumi!” sagði kennarinn. “Jeg sá þig fara aö hlæja. Að hverju varstu aö hlæja?” Tumi: “Að því, sem mér datt i hug.” Kennarinn: “Tumi! þú mátt ekki láta þér detta neitt í httg meðan þú ert i skól- anum. Mundu það, drengur minn!” ÚTGEFENÞUR BLAÐSINS eru Hið ev. lút, kirkjufélag fsl. í Vesturh. og hin sameinuðu bandalög. —• RITSTJÓRI: Séra N. Steingr. Thorlaksson Selkirk, Man. Can. PRKNTSMIÐJA LÖGBKRGS Entered in the Post Office at Winnipeg, Man., as second class matter.

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.