Muninn - 18.12.2003, Side 6
VIMA
Hvað er það sem gerir VíMA
að betra félagi en HíMA?
Æ, ég veit það ekki.
Hugsjónirnar máske? Nei, nei.
Eiga ekki allir að vera jafnir?
Er stefnan tekin á að leiða
villta sauði MA til réttrar
trúar?
Ef þú ert að vísa til þess að
ýmsir félagsmenn skrifi greinar
um þau pólitísku mál sem liggi
þeim á hjarta og tali ef til vill
fyrir ákveðnum hugmyndum
eða jafnvel stjórnmálaflokkum,
þá er það eflaust stefna lang-
flestra að opna augu skóla-
systkina sinna. En það er ekki
þar með sagt að verið sé að
reyna að sannfæra fólk með
orðum sínum, því oftast eru
hlutirnir það augljósir, séu þeir
settir í rétt samhengi, að ekki
þarf mikinn sannfæringarkraft
til. Eg er að minnsta kosti
þeirrar skoðunar að fólk verði
sjálft að sannfærast og taka
afstöðu til hugmynda og
stefnumiða, ekki bara þegar
kemur að pólitíkinni heldur líka
í hinu daglega lífi. Það er til að
mynda lítil dyggð að vera mjög
pólitískt meðvitaður ef
siðfræðin er í molum.
Hver er hin sanna fyrirmynd
allra VíMA-félaga?
Ég er nú mjög smeykur við að
taka mér stjórnmálamenn og -
leiðtoga til fyrirmyndar, enda
þjónar það litlum tilgangi og
kemur aftur í hausinn á manni
um leið og fyrirmyndin stígur
feilspor - sem er nánast óhjá-
kvæmilegt að gerist fyrr eða
síðar. Hins vegar er hollt að
skoða virkilega slæma stjórn-
málaleiðtoga og láta þá verða
sér víti til varnaðar. T.d. held ég
að hægt væri að búa til ansi
góðan stjórnmálamann með því
að horfa vestur til Banda-
ríkjanna á forseta þeirra,
George Walker Bush. Ef maður
forðast allt sem hann er og
stendur fyrir, þá ætti maður að
vera í góðum farvegi og með
hreina samvisku.
Myndir þú segja að allir
félagar í HíMA væru
stuttbuxnadrengir og Dabba-
dýrkendur?
Nei, alls ekki. Enda get ég
ekkert dæmt um það. HÍMA er
eðli málsins samkvæmt mjög
mismunandi félag eftir árum,
líkt og VÍMA. Starfið og virknin
fer mjög eftir þeim sem sitja
stjórnina hverju sinni. Ég hefði
raunar kosið að fá að upplifa
aðra HÍMA-stjórn eins og þá
sem sat þegar ég var í fyrsta
bekk og hafði ásamt öðrum
endurreist VÍMA nokkrum
vikum eftir að skólinn byrjaði.
Þá voru í stjórn nokkrir mjög
skemmtilegir karakterar úr 4.X,
og við VÍMA-busar vorum nú
ansi duglegir við að standa
uppi í hárinu á þeim - maður
skynjaði oft og tíðum dálítinn
pirring - sérstaklega þegar við
tókum okkur til og mættum í
Sjálfstæðishúsið með hamar og
sigð samviskusamlega næld við
brjóst okkur.
Hver er hinn heilagi sannleikur?
Hinn heilagi SANNLEIKUR er
tímarit Vinstri manna í Mennta-
skólanum á Akureyri. Nafnið er
ættleitt frá Ráðstjórnarrík-
junum, en hið opinbera dag-
blað hét Pravda, sem þýðir
sannleikur á rússnesku. SANN-
LEIKUR kemur út nokkrum
sinnum á ári og er til þess að
félagsmenn geti komið skoð-
unum sínum á framfæri og
jafnvel miðlað af reynslu sinni.
Sannleiknum er sumsé komið á
framfæri í SANNLEIK.
Verður virk starfsemi í VÍMA í
vetur?
Við ætlum að reyna að mæta
kröfum menntskælinga um
pólitíska dagskrá eins vel og
okkur er unnt, en auðvitað
mótast starfið mjög af því hvort
kosningar eru á næsta leiti. Á
kosningaári er oft töluverð
spenna t starfinu og lítill tími
gefst fyrir miklar vangaveltur
um það sem skiptir máli í
pólitík. Nú höfum við tækifæri
til að bæta upp fyrir það, og
svo er líka nauðsynlegt að taka
sér smá frí við og við.
Eitthvað að lokum?
Já.
Gunnar Már Gunnarsson tók
viðtal við Finn Dellsén
HÍMA
Hvað er það sem gerir HíMA
að betra félagi en VíMA?
Ekkert, þessi félög eru að mínu
mati jafn áhrifalítil. Það ætti að
leggja HÍMA og VÍMA niður og
stofna eitt félag um pólitík.
Þannig getum við jafnvel haldið
málstofur í samvinnu við
kennara í félagsfræðideildinni.
Er stefnan tekin á að leiða
villta sauði MA til réttrar
trúar?
Nei, bara að reyna að upplýsa
fólk. Ekki láta fólk kjósa eitt-
hvað út af því að það er í tísku
að vera í VG í MA.
Hver er hin sanna fyrirmynd
allra HíMA-félaga?
Pétur Blöndal og Dr. Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
BJARNI PÁLMA
Myndir þú segja að allir
félagar í VíMA væru sófa-
kommar?
Já.
Hver er hinn heilagi sann-
leikur?
Frelsi einstaklingsins.
Verður virk starfsemi í HÍMA í
vetur?
Ekki hjá HÍMA, en við erum virk
í Verði félagi ungra Sjálfstæðis-
manna á Akureyri
Eitthvað að lokum?
Hafið þið það bara gott um
jólin.
Gunnar Már Gunnarsson tók
viðtal við Sigurgeir Valsson
Jæja Bjarni nú ert þú búinn að
stofna þitt eigið félag, hvað
kemur til?
Já það er rétt ég hef lengi
verið þekktur sem glaumgosinn
í vinahópnum mínum og
langaði að gefa fólki tækifæri á
að kynnast mínum innri manni.
En aðalástæðan fyrir þessu
félagi er að þessi skóli hefur
gefið mér mikið og mér fannst
ég tilneyddur til að endurgjalda
honum eitthvað af þessari
miklu ánægju sem hann hefur
fært mér.
Er þetta fjölmennt félag? Og
afhverju ætti fólk að skrá sig í
það?
Já alveg gríðarlega, nú þegar í
lok árs hafa 5 skráð sig og er
það í nokkru samræmi við
mínar væntingar. Ég meina ef
fólk vill hafa gaman þá er þetta
félagið til að vera í.
Hvernig finnst þér félagslífið
hafa verið í skólanum?
Ég stundaði það mikið fyrstu
þrjú árin en eftir að ég byrjaði
með kærustunni hef ég róast
aðeins og hef því eytt mestum
mínum tíma að undanförnu í
kósí stemmningu heima. En
annars finnst mér frábært að
sjá hvað allir eru virkir í
félagslífinu ár eftir ár hér í MA.
En Bjarni viltu segja eitthvað
að lokum?
MA og Bjarni Pálma lifi!