Muninn - 18.12.2003, Qupperneq 7
MFH
Málfundafélag Hugins
Ljósmynd: Auðunn Níelsson
I engri menntaskólakeppni
hafa jafn margar stjörnur litið
dagsins Ijós eins og raunin er í
Morfís. Auðvitað hefur Söng-
keppnin átt sína kandídata en
þá þarf líka að velta því fyrir
sér hvort Jónsi í Svörtum
fötum og Birgitta okkar Hauk-
dal séu blessun eða böl.
Mér fannst strákarnir standa sig
mjög vel. Ég er bara undrandi á
hvernig dómararnir dæmdu því
mér fannst við vera miklu betri
en Flensan en svona er lífið, við
verðum BOMBA \ næstu
keppni.
Elísa Kristín Arnarsdóttir
formaður málfundarfélagsins,
má vera ánægð enda sýndu
strákarnir mjög vandaða
ræðumennsku. Ræðulið skólans
er skipað eftirfarandi einstak-
lingum:
Ævar Þór Bendiktson hefur
lengi verið vonarneisti skólans í
þessum efnum enda virðist
stráksi hafi fæðst upp á sviði.
Hann veit hvað þarf til þess að
halda athygli áhorfenda án
þess þó að falla í gryfju ofleiks
og rökleysu.
Hafliðið Arnar Hafliðason býr
yfir ótrúlegum krafti og er
óstöðvandi ef hann einu sinni
kemst á skrið. Sjaldan hefur
nokkur maður sést sem tjáir sig
jafn sterklega með öllum
líkamanum, og rúmlega það.
Skemmtilegur stíll sem eflaust
mun koma mörgum andstæð-
ingum þeirra í opna skjöldu.
Elmar Geir Unnsteinsson bætir
vissri dýpt við liðið. Hann er að
mörgu leyti gamaldags ræðu-
maður, þar sem ofuráhersla er
lögð á sjálft innihald ræðunnar.
Þennan ræðustíl hefur Elmar
algjörlega á valdi sínu og bætir
við hann ýmsu frá eigin brjósti.
Hans helsta sérstaða liggur í
því að sýna viðfangsefnið í öllu
öðru Ijósi en því sem augljósast
er. Gaman verður að fylgjast
með honum í næstu keppnum
enda verða ræðurnar hans
sífellt forvitnilegri
Guðni Líndal Benediktsson er
fyrsti nýneminn í langan tíma
sem kemst inn í ræðulið MA.
Hann er ótrúlega öruggur á
sviði og vel með á nótunum
þrátt fyrir reynsluleysi. Framtíð-
in er björt þar sem hinn mikli
Magnum mun eflaust láta að
sér kveða í ræðumennsku á
komandi árum.
Það er mál manna í Reykjavík
að næstu andstæðingar okkar,
Fjölbrautarskólinn í Breiðholti,
sé með eitt sterkasta liðið
sunnan heiða. Það verður því
mjög spennandi að fylgjast
með þeirri keppni, sem haldin
verður hér í Ijónagryfjunni
stuttu eftir próf. Ef sigur vinnst
á FB-ingum þá ætti leiðin að
vera nokkuð greið. Stjórn
Málfundafélagsins er að
minnsta kosti bjartsýn og að
því sögðu leyfi ég Elísu að eiga
lokaorðin.
Ég held að við séum með bestu
mennina í liðinu sem völ er á
og þeir eiga eftir að gera sitt
besta á móti FB. Ég hef alla trú
á þeim. Við ætlum okkur að
komast í úrslitakeppnina í
Háskólabíói og vinna með stæl.
Við vorum rétt að hita upp í
síðustu keppni og nú tekur
alvaran við: we save the best
until last!
Gunnar Már Gunnarsson
PRÍMA
Prímadonnur í MA
Hvað eru prímadonnur í MA?
Við erum dansfélagið í MA.
Hvað hafið þið brallað það
sem af er vetrar?
Við erum búin að halda salsa-
námskeið og afrónámskeið sem
bæði heppnuðust mjög vel og
þátttaka var góð. Svo vorum
við jú auðvitað með ógleyman-
lega danssýningu á árshátíð-
inni.
Eitthvað spennandi
framundan?
Eftir áramót verða fleiri nám-
skeið og uppákomur, en við
stefnum að því að hafa maga-
dansnámskeið, freestyle jafnvel
o.fl., að ógleymdum súludansi í
umsjón Ursúlu (hehe).
SKAKMA
Formaður: Björn (var Karlsson, 3.T
Formaður: Jóna Björk Viðarsdóttir 4.T
Eru einhverjir strákar í PríMA?
Já, já, þeir eru þónokkrir og
bara þrælgóðir.
Eruð þið duglegasta félagið?
Já, engin spurning - við erum
bara langbest!
Eitthvað að lokum?
Eg vona bara að allir finni
eitthvað við sitt hæfi eftir
áramót og skelli sér á einhver
námskeið því það er svo gaman
að dansa.
Björn, nú ert þú formaður
SkákMA, af hverju ætti maður
að ganga í SkákMA?
Af hverju? Ef maður hefur
áhuga á skák, og hefur áhuga á
að koma sér á framfæri í
skákheiminum, eða bara að
tefla, vera kúl og töff eða
whatever - þá er rétt að ganga
í skákfélagið. Það eina í
stöðunni.
Er þetta fyrsta skákfélag MA
eða veistu til þess að
skákfélag hafi verið í
skólanum áður?
Ég veit ekki til þess að SkákMA
hafi verið til áður, en ég tel það
liklegt að einhvers konar
skákfélagi hafi verið haldið úti
innan skólans, því vissulega
hafa margir góðir skákmenn
sótt menntimar heim í MA líkt
og við.
halda utan um skáklið
Menntaskólans sem er einmitt
núverandi Islands- og Norður-
landameistari framhaldsskóla-
sveita.
Stefnið þið á einhverja
starfssemi í vetur?
Það er í deiglunni að halda eitt
til tvö skákmót, að sjálfsögðu
með mjög veglegum verð-
launum, og svo ætla ég að sjá
til þess að skólinn eignist áhöld
til skákiðkunar, Menntskæl-
ingum komandi ára til
ómældrar gleði.
Þegar viðtalinu var að Ijúka var
Björn óvænt laminn í hausinn af
óðri busastelpu. Við það
ruglaðist hárgreiðsla hans og
hann varð svo miður sín að
hann treysti sér ekki til að gefa
nein lokaorð.
ÍSLANDSBAN Kl
Hvað eru margir skráðir í
félagið?
Enn sem komið er eru ekki
margir skráðir, enda félagið
ekki stofnað með það í huga að
safna að sér félagsmönnnum,
heldur til að vekja áhuga
nemenda á skák, auk þess að
Blaðamenn: Sigurlaug Elín 1.F
og Hólmfríður Helga 2.G